Bátsverjarnir héngu utan á sökkvandi bátnum Kjartan Kjartansson skrifar 20. maí 2018 00:01 Stefni trillunar sé stóð upp úr sjónum þegar björgunarsveitarmenn sáu síðast til hennar. Landsbjörg
Sjómennirnir tveir sem bjargað var í Skagafirði í kvöld héngu utan á stefni trillu sinnar þegar björgunarsveitarmenn komu að þeim. Þeim hafði tekist að koma sér í björgunargalla og amaði því ekkert að þeim þrátt fyrir að sjór hafi gengið yfir þá. Ingimundur Ingvarsson í svæðisstjórn björgunarsveita á svæðinu segir að ólag eða brot hafi komið á bátinn sem hafi valdið því að hann lagðist á hliðina. Mennirnir tveir sem voru um borð hafi náð að gera Landhelgisgæslunni viðvart og svo komið sér í björgunargalla. Báturinn hafi hins vegar fljótt farið nær alveg á kaf. Mennirnir náðu að hanga á stefni trillunar þar til björgunarsveitarmenn á bátum frá Sauðárkróki og Hofsósi komu á vettvang nærri Reykjadiskum í Skagafirði. Þyrla Landhelgisgæslunnar var einnig kölluð út vegna óhappsins.Ekkert amaði að mönnunum sem voru alveg þurrir þegar þeim var komið í björgunarbátinn, að sögn Ingimundar. Þeir var komið til hafnar að Reykjum og þeim síðan ekið til Sauðárkróks. „Úr því sem komið var fór þetta bara mjög vel,“ segir Ingimundur við Vísi. Nokkur strekkingur og öldugangur var á svæðinu þegar óhappið varð. Ingimundur segir þó að eitthvað annað hafi gerst sem hafi komið bátsverjum í vanda. Trillan hafi vel átt að ráða við veðuraðstæður. Síðast þegar björgunarsveitarmenn sáu til trillunar stóð ennþá örlítið af stefninu upp úr sjónum.
Tengdar fréttir Tveimur mönnum bjargað áður en trilla sökk í Skagafirði Ólag kom á bátinn nærri Reykjadisk í Skagafirði. Báturinn snerist og sökk á endanum en mönnunum tveimur var bjargað áður. Þyrla Landhelgisgæslunnar og öll tiltæk björgunarskip voru kölluð út. 19. maí 2018 22:12 Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Fleiri fréttir Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Sjá meira
Tveimur mönnum bjargað áður en trilla sökk í Skagafirði Ólag kom á bátinn nærri Reykjadisk í Skagafirði. Báturinn snerist og sökk á endanum en mönnunum tveimur var bjargað áður. Þyrla Landhelgisgæslunnar og öll tiltæk björgunarskip voru kölluð út. 19. maí 2018 22:12