Innlent

Óheimilt að synja fyrrverandi fanga um aðstoð

Aðalheiður Ámundadóttir skrifar
Hafnarfjarðarbær synjaði fanga um fjárhagsaðstoð.
Hafnarfjarðarbær synjaði fanga um fjárhagsaðstoð. Vísir/Daníel
Úrskurðarnefnd velferðarmála hefur komist að þeirri niðurstöðu að fortakslaust ákvæði í reglum Hafnarfjarðarbæjar um fjárhagsaðstoð standist ekki grundvallarreglur íslensks réttar um rétt til félagslegrar aðstoðar.

Fyrrverandi fangi kvartaði til nefndarinnar eftir synjun bæjarins um fjárhagsaðstoð en hann hafði sótt um aðstoð á þeim grundvelli að hann stundaði háskólanám en þar sem hann sé á vanskilaskrá eigi hann ekki rétt á námsláni frá LÍN nema með ábyrgðarmanni, en ómögulegt geti reynst fyrir fyrrverandi fanga sem bíða gjaldþrot að fá ábyrgðarmann að láni.

Guðmundur Ingi Þóroddsson.
Umsókn mannsins var synjað með vísan til fortakslauss ákvæðis reglna bæjarins um að einstaklingar sem stunda nám sem er lánshæft hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna, njóti ekki réttar til fjárhagsaðstoðar.

Í niðurstöðu úrskurðarnefndarinnar er á því byggt að umrætt ákvæði leiði í reynd til þess að ekki fari fram eiginlegt mat á aðstæðum umsækjenda og því hvort þeir geti séð sjálfum sér og fjölskyldum sínum farboða án aðstoðar. 

„Þar sem löggjafinn hefur eftirlátið stjórnvöldum mat til þess að geta tekið ákvörðun sem best hentar hag hvers aðila, með tilliti til allra aðstæðna, er stjórnvöldum óheimilt að afnema matið með því að setja til dæmis verklagsreglu sem tekur til allra mála, sambærilegra sem ósambærilegra.“ 

Formaður Afstöðu, félags fanga, fagnar niðurstöðunni og segir hana fordæmisgefandi. „Afstaða hefur margoft bent á að þeir verst stöddu í samfélaginu falli á milli skips og bryggju með fortakslausum ákvæðum sem þessu og að þau hefti möguleika þeirra sem ljúka afplánun til að byggja upp líf sitt að nýju. Það er því sérlega ánægjulegt að úrskurðarnefndin taki af allan vafa í þessu tiltekna máli og segi að meta þurfi aðstæður allra umsækjenda um fjárhagsaðstoð,“ segir Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×