Snjókoma í kortunum Stefán Ó. Jónsson skrifar 11. júní 2018 06:53 Ísfirðingar mega gera ráð fyrir snjókomu á fimmtudag. Vísir/samúel
Landsmenn mega gera ráð fyrir heldur hráslagalegu veðri í vikunni ef marka má spákort Veðurstofunnar. Ekki aðeins er búist við einhverri vætu á hverjum einasta degi heldur gætu íbúar og gestir Vestfjarða átt von á snjókomu á fimmtudag- gangi spáin eftir. Það verður þó hægur vindur í dag, norðaustan 3 til 8 m/s og hitinn verður á bilinu 7 til 16 stig, hlýjast á Suðausturlandi. Þessu mun þó fylgja súld eða dálítil rigning norðantil, þó er aðeins gert ráð fyrir stöku skúrum og vestlægari átt sunnan heiða. Svipað veður er svo í kortunum fyrir þriðjudag og miðvikudag. Búast má við einhverri úrkomu í flestum landshlutum, án þess þó að það hellirigni, og verður hitinn nálægt 10 stigum. Það snýst svo í norðanátt á fimmtudag, áfram mun rigna norðan- og austanlands en það verður úrkomulítið á Suður- og Vesturlandi. Þá gæti hitinn farið upp í 15 stig á Suðurlandi. Hins vegar gæti snjóað á Vestfjörðum á fimmtudag sem fyrr segir, þar sem búist er við að hitinn verði um frostmark. Fólk á miðhálendinu ætti einnig að búa sig undir snjókomu á fimmtudag.Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ þriðjudag:Suðlæg eða breytileg átt 3-8 m/s og smáskúrir, en dálítil rigning S- og V-lands síðdegis. Hiti 7 til 13 stig. Á miðvikudag:Breytileg átt 3-8 og stöku skúrir, en fer að rigna A-lands um kvöldið. Hiti breytist lítið. Á fimmtudag og föstudag:Norðanátt og súld eða rigning, en úrkomulítið S-lands. Hiti 5 til 15 stig, hlýjast á S-landi. Á laugardag og sunnudag (lýðveldisdagurinn):Breytileg átt, skýjað með köflum og skúrir víða um land.
Veður Mest lesið Flugeldaverksmiðja sprakk í loft upp Erlent Báðu um að fá að grafa upp Jónas Hallgrímsson Innlent Fleiri bitnir af hundunum Innlent Enn ekkert spurst til Hákonar Innlent Lítið breyst á fimmtán árum Innlent Höggið verði mikið fyrir ríkisstjórnina segi þjóðin nei Innlent Flugmaður hjá Icelandair opnar bókhaldið Innlent Tvö á slysadeild eftir árás lausra hunda Innlent Vaknaði við hávaða og raddir úr næsta herbergi Innlent Miðvinstristjórn mynduð í Danmörku Erlent Fleiri fréttir Báðu um að fá að grafa upp Jónas Hallgrímsson Lítið breyst á fimmtán árum Flugmenn lagt fram fleytilausn og staðan sögð erfið Höggið verði mikið fyrir ríkisstjórnina segi þjóðin nei Engar vísbendingar um kvikusöfnun en ríflega sjö hundruð skjálftar Fleiri bitnir af hundunum Hagsmunir barna ágætlega tryggðir í „bagalegu óyndisúrræði“ „Þá þurfum við að gera miklu betur“ Flokkur fólksins mælist utan þings Skortur á aðstoð, mótmæli og höggstaður á ríkisstjórn Enn ekkert spurst til Hákonar Stærsti skjálfti á svæðinu síðan 2022 Mótmælendur trufluðu þingfund Má heita Freyjó og Sifjar en ekki Mikhael „Það þarf kjark til að viðurkenna mistök“ Myndataka í lágloftunum vekur athygli Grunaður barnaníðingur í varðhaldi á grundvelli almannahagsmuna Syngjandi dúx Snarpur skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Vaknaði við hávaða og raddir úr næsta herbergi Segir Ragnar Þór afhjúpa vanþekkingu á skólastarfi Flugmaður hjá Icelandair opnar bókhaldið „Andrúmsloftið er þungt og það eru allir slegnir“ Andlát á Hólmsheiði og skammtímasamningur á borðinu í flugdeilunni Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Á fimmta hundrað skjálftar mælst í hrinunni Segir að honum hafi gengið illa að sofna vegna hræðslu Tveggja bíla árekstur á Suðurlandsbraut Tvö á slysadeild eftir árás lausra hunda Engin Icelandair-þota sást á flugsýningunni Sjá meira