Þyrlur Gæslunnar í þrjú útköll í dag Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 4. júlí 2018 17:47 Frá vettvangi umferðarslyss við Úlfljótsvatn í dag. landhelgisgæslan
Þyrlur Landhelgisgæslunnar hafa verið kallaðar út þrívegis það sem af er degi vegna veikinda eða slysa. Á tólfta tímanum var óskað eftir aðstoð vegna veikinda í Ólafsvík og hélt TF-SYN á staðinn og sótti sjúklinginn. Lenti þyrlan við Landspítalann í Fossvogi skömmu fyrir klukkan eitt. Þá óskaði Neyðarlínan eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar klukkan hálf þrjú vegna konu sem hafði slasast í Reynisfjör. TF-GNÁ var send á staðinn og sótti konuna við Skógafoss. Er þyrlan tók á loft þaðan barst önnur beiðni frá Neyðarlínunni, nú vegna umferðarslyss við Úlfljótsvatn. Aftur var óskað eftir aðstoð þyrlu Gæslunnar. Ákveðið var að TF-GNÁ skyldi halda í átt að Úlfljótsvatni en TF-SYN var sömuleiðis kölluð út með hæsta forgangi og send á staðinn. „Konan um borð í TF-GNÁ var lærbrotin og var ákveðið að hún færi með TF-SYN frá Úlfljótsvatni áleiðis á Landspítalann. Læknirinn um borð í TF-GNÁ gat því hugað að þeim sem lentu í bílslysinu á Úlfljótsvatni en þyrlan tók á loft þaðan með tvo slasaða klukkan 16:35 og lenti laust fyrir klukkan 17:00 við Landspítalann í Fossvogi,“ segir í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.
Snæfellsbær Mest lesið Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Innlent Fleiri fréttir Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Sjá meira