Innlent

Þjóðskjalasafnið ýtir á eftir kjararáði

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Frá húsakynnum kjararáðs í Skuggasundi í Reykjavík.
Frá húsakynnum kjararáðs í Skuggasundi í Reykjavík. Fréttablaðið/Ernir
Þjóðskjalasafn Íslands hefur óskað eftir því við fjármála- og efnahagsráðuneytið að frágangur og afhending skjalasafns kjararáðs verði sett í formlegt ferli. Tæpir tveir mánuðir eru liðnir frá því að ráðið var lagt niður en enn hafa gögn frá því ekki borist safninu.

Á síðasta ári óskaði Fréttablaðið eftir því að fá afrit af fundargerðum kjararáðs. Beiðni þess efnis var synjað. Sú niðurstaða var kærð til úrskurðarnefndar um upplýsingamál sem felldi synjunina úr gildi vegna annmarka á henni. Lagt var fyrir ráðið að taka málið til meðferðar að nýju. Fjórum dögum síðar var ráðið ekki lengur til.

Eftir að ráðið var lagt niður gilda lög um opinber skjalasöfn um aðgang að gögnunum. Í júlí kannaði Fréttablaðið hjá Þjóðskjalasafninu hvort gögnin hefðu borist og fengust þau svör að svo væri ekki. Í ágúst bárust þau svör frá safninu að engin samskipti hefðu átt sér stað milli safnsins og kjararáðs eða ráðuneytisins vegna afhendingar gagnanna.

„Satt best að segja á ég ekki von á því að þetta komi hingað á allra næstu vikum eða mánuðum,“ segir í svari skjalavarðar við skeyti blaðsins.

Í svari frá fjármálaráðuneytinu frá því í síðustu viku segir að gögnin séu ekki í vörslu eða á ábyrgð ráðuneytisins. Starfsmaður kjararáðs sjái um að ganga frá gögnunum og afhenda þau. Ráðuneytið hafi engar upplýsingar um hvernig sú vinna gangi.

Eftir fréttaflutning um seinaganginn hafði starfsfólk safnsins samband við ráðuneytið og óskaði eftir því að málið yrði sett í farveg. Viðbragða ráðuneytisins er nú beðið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×