„Mjög kröpp lægð“ á hraðferð í átt að landinu Kristín Ólafsdóttir skrifar 12. desember 2018 08:37 Landsmenn munu finna fyrir lægðinni á morgun. Vísir/Hanna
Blautt og vindasamt verður víða um land í dag. Mjög kröpp lægð hreyfist nú hratt í norður og nálgast landið, með tilheyrandi hvassviðri í kvöld, en áhrifa lægðarinnar gætir einkum á morgun. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Í dag er búist við sunnan- og suðaustanstrekkingsvindi og skúrum víða um land. Bæði úrkomu og vind hægir þegar líður á daginn og kólnar í veðri. Þá verður bjartviðri á Norður- og Austurlandi og hiti fimm til tíu stig. Kröpp lægð hreyfist jafnframt hratt norður á bóginn og í kvöld og nótt mun hvessa af suðaustri þegar hún nálgast landið. „Á morgun siglir lægðin þvert yfir land og gengur þá í suðaustanhvassviðri eða -stormi og rignir víða, nema fyrir norðan þar sem helst þurrt lengst af. Hlýnar aftur í veðri og síðan áfram stíf suðaustanátt og vætusamt fram á helgi, en úrkomulaust að kalla á Norðurlandi,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.Veðurhorfur á landinu næstu daga:Á föstudag:Vaxandi suðaustanátt, 15-23 m/s síðdegis, hvassast syðst. Talsverð rigning um landið suðaustanvert, en úrkomulítið norðan- og vestanlands. Hiti víða 3 til 8 stig.Á laugardag:Hvöss suðaustanátt og skúrir, en þurrt að mestu um landið norðanvert. Heldur hægari vindur síðdegis. Hiti 0 til 5 stig.Á sunnudag:Austlæg átt 8-13 m/s, en hægari um landið norðaustanvert. Dálítil væta sunnan- og austanlands, en annars þurrt. Hiti 0 til 5 stig, en um frostmark fyrir norðan.Á mánudag:Austlæg átt og skúrir eða él í flestum landshlutum. Hiti 0 til 5 stig við suðurströndina, en annars kringum frostmark.Á þriðjudag:Útlit fyrir vaxandi austanátt með rigningu og hlýnandi veðri.
Veður Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Innlent Fleiri fréttir Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Sjá meira