„Lyklalausar“ bifreiðar berskjaldaðri en menn héldu Sveinn Arnarsson skrifar 31. janúar 2019 08:00 Nissan Qashqai var einn af þessum bílum þar sem hægt var að ræsa vélina með þessari tækni.
Mikill fjöldi bílgerða, þar á meðal bifreiðar sem eru með þeim mest seldu í Evrópu, eru nokkuð berskjaldaðar fyrir því að hægt sé að stela þeim vegna þeirrar tækni að hægt er að ræsa bifreiðina með því að þrýsta á hnapp í stað þess að ræsa hana með lykli eins og hefur tíðkast síðustu áratugina. Þjófnaður á bílunum fer þannig fram að ákveðin tækni er notuð til að komast inn í þá útvarpstíðni sem bifreiðin notar til að nema „lykilinn“ sem oftast nær er aðeins notaður til að opna bílinn en þarf að vera inni í bílnum til að hægt sé að ræsa vélina. Með þessari tækni er þá hægt að „blekkja“ bílinn, ef svo má að orði komast, og ræsa vélina. Þetta kemur fram í breskum miðlum. Gögn frá breska ríkisútvarpinu sýna að bílþjófnaðir í Bretlandi hafi aukist á síðustu árum. Einnig hefur félag þýskra bifreiðaeigenda látið rannsaka málið og komist að þeirri niðurstöðu. Af 237 bifreiðum voru 234 bifreiðar næmar eða berskjaldaðar fyrir tækninni og hægt var að stela þeim. Ford Fiesta og Ford Focus, Nissan Qashqai og Volkswagen Golf eru fjórar af fimm mest seldu bíltegundum á Bretlandseyjum. Allar þessar gerðir voru berskjaldaðar fyrir þessari gerð innrásar í bílana og hægt var að ræsa vélar þeirra með þessari tækni. Hér á Íslandi hefur á síðustu mánuðum komið upp mál sem lögreglan hefur þurft að skoða sem tengjast þjófnuðum úr bílum þar sem ein tegund bifreiða varð sérstaklega fyrir valinu á bíræfnum þjófum. Einnig hefur Volkswagen Golf verið vinsæll meðal bílaleigubíla hin síðari ár og því mikið af slíkum bifreiðum á götum landsins. Nýjustu bílarnir af þeirri gerð eru einmitt þannig að ekki þarf lykil til að ræsa vélina. Nægjanlegt er að fjarstýringin sé inni í bifreiðinni þegar vélin er ræst með fjarstýringu.
Birtist í Fréttablaðinu Bílar Mest lesið Situr í súpunni eftir að hafa selt bankaþjófi jeppa Innlent Reikna með tveggja daga aðalmeðferð í máli Alberts Innlent Játaði hópnauðgun og vildi komast í frí til heimalandsins Innlent „Versta martröð Trumps“ kjörin borgarstjóri New York Erlent Gat keypt afmælisblómin eftir að ókunnugur mætti með skóflu Innlent Segir þaggað niður í starfsfólki og hyggst ekki snúa aftur Innlent Sonurinn sefur enn með kylfu undir rúminu Innlent Ferðin á Keflavíkurflugvöll það erfiðasta við utanlandsferðina Innlent Banna samtök íslamista og gerðu húsleit hjá fleiri Erlent Innsigluðu sex gististaði vegna skorts á leyfum Innlent