Hríðarveður á Norður- og Austurlandi Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 18. febrúar 2019 07:45 Úrkomuspá Veðurstofu Íslands fyrir klukkan 10 í dag en eins og sjá má er spáð þó nokkurri ofankomu fyrir norðan og austan.
Það verður áfram norðanhríðarveður á Norður- og Austurlandi fram yfir hádegi en svo mun smám saman draga úr vindi og rofa til, að því er fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Þar segir að léttskýjað verði á sunnanverðu landinu en sums staðar má búast við snörpum vindhviðum við fjöll framan af degi. Þá er spáð fremur hægri austlægri átt og að bjart verði með köflum á morgun en strekkingur og stöku skúrir eða él við suðurströndina. Það mun síðan hvessa talsvert sunnanlands annað kvöld með rigningu sums staðar og hlýnandi veðri. Á miðvikudagsmorgun spáir svo austanstormi með rigningu og slyddu um land allt en síðdegis á að lægja og stytta upp.Veðurhorfur á landinu:Norðan 10-18 m/s, en 15-23 undir Vatnajökli framan af morgni. Snjókoma eða él á N-verðu landinu, en léttskýjað syðra. Frost víða 0 til 5 stig, en frostlaust syðst og austast. Hægari og úrkomuminni seinni partinn og kólnar heldur.Suðaustlæg átt, 3-10 m/s og bjart með köflum á morgun, en 10-15 og stöku skúrir eða él við S-ströndina. Hvessir talsvert S-lands um kvöldið, rignir víða þar og hlýnar heldur í veðri.Á þriðjudag:Austlæg átt, 8-15 m/s og skýjað með köflum, en 15-23 með S-ströndinni þegar líður á daginn og stöku él syðst. Hiti 0 til 5 stig syðra, en frost annars 1 til 6 stig.Á miðvikudag:Gengur í austanstorm með talsverðri rigningu eða slyddu, en snjókomu til fjalla. Lengst af úrkomulítið fyrir norðan. Dregur talsvert úr vindi og úrkomu þegar líður á daginn. Heldur hlýnandi veður.Á fimmtudag og föstudag:Allhvöss eða hvöss sunnanátt með rigningu, en þurrt að kalla fyrir norðan. Fremur hlýtt í veðri.Á laugardag:Útlit fyrir að lægi og kólni með slyddu eða snjókomu A-lands, en annars þurrt að kalla.
Veður Mest lesið Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Fleiri fréttir Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Sjá meira