Rúmlega 25 milljónir til neyðaraðstoðar í Mósambík og Malaví Heimsljós kynnir 29. mars 2019 12:45 WFP/ Marco Frattin
Utanríkisráðuneytið hefur ákveðið að fela Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) að ráðstafa 200 þúsund Bandaríkjadölum – um 25 milljónum íslenskra króna – til björgunarstarfa á hamfarasvæðunum í Mósambík og Malaví. Óttast er að yfir eitt þúsund íbúar hafi látist í ofsaflóðum í kjölfar fellibylsins Idai sem gekk yfir sunnanverða Afríku fyrir hálfum mánuði. Þegar hefur verið staðfest að rúmlega 760 hafi farist en hundruð íbúa er enn saknað, flestra í Beira og nágrenni, þar sem tæplega 34 þúsund heimili eyðilögðust algjörlega. „Eyðileggingin af völdum fellibylsins Idai er meiri en orð fá lýst og íbúar hamfarasvæðanna hafa liðið ómældar þjáningar. Við getum ekki staðið aðgerðalaus hjá slíkum hörmungum heldur ber okkur siðferðisleg skylda til að hjálpa þeim sem um sárt eiga binda, ekki síst í ljósi þess að um samstarfsríki Íslands til margra ára er að ræða. Ég bind vonir við að framlag okkar til Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna hafi verulega þýðingu fyrir þá sem verst hafa orðið úti,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra. Þúsundir íbúa á flóðasvæðunum hafa misst allt sitt og björgunarsveitir leggja nú áherslu á matvæla- og lyfjaaðstoð, vatn- og salernisaðstöðu, auk þess sem kapp er lagt á að koma upp neyðarskýlum. Heilbrigðisstarfsfólk leggur nótt við dag að bólusetja íbúa gegn kóleru til að freista þess að afstýra faraldri. Þegar hafa verið staðfest 139 tilvik þessa banvæna smitsjúkdóms í Mósambík. Aðrir vatnsbornir sjúkdómar hafa líka látið á sér kræla. Filipe Nyusi forseti Mósambík segir hamfarirnar þær mestu í sögu landsins. Mikil þörf er fyrir stuðning alþjóðasamfélagsins og ljóst að enduruppbygging tekur langan tíma. Mikil eyðilegging og manntjón varð einnig í Zimbabwe og Malaví af völdum veðurofsans og flóðanna. Malaví er annað tveggja samstarfslanda Íslands í alþjóðlegri þróunarsamvinnu og Íslendingar styðja áfram þróunarstarf í Mósambík þótt sendiráði Íslands hafi verið lokað þar fyrir rúmu ári. Báðar þjóðirnar eru meðal fátækustu þjóða í heimi. Sameinuðu þjóðirnar hafa óskað eftir 35 milljarða króna framlagi til uppbyggingarstarfs í Mósambík næstu þrjú árin. Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Erlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent