Vinagarður Þorbjörg Gunnlaugsdóttir skrifar 28. mars 2019 15:15 Leikskólinn Vinagarður skipar sérstakan sess í hjarta mínu eftir leikskólagöngu yngstu dótturinnar. Þar störfuðu dásamlegar konur öll árin sem skólinn var hluti af daglegu lífi fjölskyldunnar og ég verð alltaf þakklát fyrir atlætið sem hún fékk þar. (Og sömuleiðis fyrir fallegar flétturnar sem dóttirin fékk í leikskólanum en vankunnátta mín á því sviði er þannig að ég sagði stundum að pabbi hennar hefði fléttað hana.) Það segir mikla sögu um manneskju að vinna í Vinagarði. Þess vegna get ég svo illa skilið fréttir af því að starfsmanni Vinagarðs hafi verið vísað úr landi. María leikskólastjóri sagði í fréttum að konan hefði náð vel til barnanna og sinnt öllum verkum vel. Allar væru þær þakklátar fyrir að hafa fengið að kynnast henni. Ekki var ástæðan sú að fækka þurfti starfsfólki, það vantar fólk í marga leikskóla eins og foreldrar í Reykjavík þekkja. Og sjálf vildi konan helst af öllu halda áfram að sinna börnunum. Hún var mikils metin af starfsfólki, börnunum og foreldrum þeirra. Börnin kvöddu hana síðan öll, hvert og eitt, með því að faðma hana en án þess að vita að í framhaldinu kvaddi hún líka Ísland. Henni urðu nefnilega á þau mistök að hafa lent í stríðinu í Sýrlandi og að hafa ekki komið beinustu leið til Íslands á flótta sínum, heldur fyrst til Grikklands. Þar er þessi starfsmaður Vinagarðs núna. Fréttirnar sögðu sorglega sögu þessarar konu, sem er nafnlaus í fjölmiðlum, og söguna af aðstæðum hennar. Íslenska sagan sem börnin í Vinagarði munu heyra þegar fram líða stundir er þó ekki síður sorgleg. Það er nefnilega sagan af því hverjar aðstæður eru á Íslandi gagnvart fólki í neyð. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen Skoðun