Má búast við miklum leysingum og álagi á frárennsliskerfi Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 25. mars 2019 07:40 Það mun bæta talsvert í rigningu með morgninum sunnan- og vestan til. vísir/vilhelm
Það má búast við miklum leysingum um allt land í dag þar sem farið er að bæta í vind og hlýna að því er fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Þar segir að það reyni mikið á frárennsliskerfi í þéttbýli og því sé góð leið til að fyrirbyggja vatnstjón að greiða leið vatns í niðurföll. Það mun bæta talsvert í rigningu með morgninum sunnan- og vestan til og er því spáð að hitinn fari víða í 5 til 8 stig. Á Norðurlandi sem og sums staðar á Vestfjörðum og Austfjörðum er meiri snjór en syðra og þar geta myndast aðstæður sem leiða til aukinnar hættu á snjóflóðum. Eins munu ár og lækir ryðja sig víðast hvar og þá geta myndast klakastíflur. Það getur því borgað sig að sýna árvekni ef maður er á ferðinni í dag.Veðurhorfur á landinu:Vaxandi suðaustanátt og snjókoma eða slydda í fyrstu á S- og V-landi, en síðar rigning. Víða suðaustan 10-18 í dag og 13-20 NV-lands um kvöldið. Talsverð rigning, en úrkomulítið norðaustantil á landinu. Hlýnandi, hiti 4 til 8 stig síðdegis.Suðvestan 8-15 á morgun en 13-20 N- og NV-lands. Skúrir framan af degi en síðan dálítil él. Bjartviðri á austanverðu landinu. Kólnar smám saman, hiti um og rétt fyrir frostmarki um kvöldið.Á þriðjudag:Suðvestan 10-18 og dálítil él, en léttir til A-lands. Hiti 1 til 8 stig, hlýjast austast, en í kringum frostmark um kvöldið.Á miðvikudag:Allhvöss sunnanátt og rigning eða slydda, en úrkomulítið NA-til á landinu. Hiti 1 til 6 stig. Vestlægari með éljum og kólnar seinnipartinn, fyrst V-lands.Á fimmtudag:Suðvestanátt. Víða snjókoma eða slydda, þurrt N-lands framan af degi en él um landið V-vert. Hiti um eða undir frostmarki.
Veður Mest lesið Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sjá meira