Bucks gekk frá Celtics og meistararnir tóku forystuna | Myndbönd Tómas Þór Þórðarson skrifar 9. maí 2019 07:30 Giannis Antetokounmpo skoraði 20 stig. vísir/getty
Milwaukee Bucks gekk endanlega frá Boston Celtics í einvígi liðanna í undanúrslitum austurdeildar NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt. Milwaukee vann fimmta leikinn á heimavelli sannfærandi, 116-91, og einvígið, 4-1, en þetta er í fyrsta sinn síðan 2001 sem að Bucks leikur til úrslita í austrinu og enn möguleika á því að verða NBA-meistari. Bucks-liðið sópaði Detroit Pistons, 4-0, í átta liða úrslitum austursins en tapaði fyrsta leik á móti Boston, 112-90. Síðan þá hefur Bucks aftur fundið taktinn og verið mun betra en Boston. Giannis Antetokounmpo skoraði 20 stig, tók átta fráköst og gaf átta stoðsendingar fyrir heimamenn en Khris Middleton bætti við 19 stigum og Eric Bledsoe 18.Golden State Warriors tók svo forystuna, 3-2, í hinu rosalega einvígi á milli meistaranna og Houston Rockets sem að Houston jafnaði með tveimur sigrum í röð á heimavelli. Warriors vann í nótt, 104-99, en Kevin Durant meiddist á kálfa í leiknum og spilaði aðeins 32 mínútur. Þrátt fyrir það risu aðrir leikmenn upp en Klay Thompson skoraði úr mikilvægu sniðskoti þegar að 4,1 sekúnda var eftir. Thompson var einmitt stigahæstur heimamanna með 27 stig en hann hitti úr fimm af tíu þriggja stiga skotum sínum. Steph Curry skoraði 25 stig en er áfram í smá basli fyrir utan þriggja stiga línuna og Durant skoraði 22 stig á 32 mínútum. James Harden var að sjálfsögðu stigahæstur hjá Houston með 31 stig en hann tók að auki fjögur fráköstu og gaf átta stoðsendinga. Næsti leikur liðanna fer fram í Houston.
NBA Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum Fótbolti Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Enski boltinn UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Íslenski boltinn Sló 24 ára gamalt met Kára Steins, aftur Sport „Hún reif í mig og hraunaði yfir mig, á Marilegan hátt“ Sport Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Eðla rölti inn á brautina á æfingu Formúla 1 Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira