Barcelona með augu á tvíeyki United Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 8. júní 2019 09:30 Marcus Rashford og Juan Mata vekja áhuga á Spáni vísir/getty
Barcelona fylgist náið með stöðu mála í samningsmálum Marcus Rashford og Juan Mata, en hvorugur þeirra er þó hátt á forgangslista félagsins. Þetta segir í frétt ESPN. Hinn 21 árs gamli Rashford á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við Manchester United, en United hefur möguleikann á að framlengja samninginn um eitt ár. Barcelona hefur áhuga á enska framherjanum og fylgist með gangi mála, en Rashford og United hafa ekki náð saman um nýjan samning. Börsungar vilja þó helst styrkja sóknarlínu sína með Antoine Griezmann og því er Rashford ekki ofarlega á forgangslistanum. Þá segjast forráðamenn Barcelona ekki eiga von á því að ná samkomulagi við United svo auðveldlega, samkvæmt frétt ESPN á háttsettur maður innan Barcelona að hafa grínast með það að það væri „jafn erfitt og að fá stefnumót með Cindy Crawford,“ og að kaupa Rashford. Barcelona hefur einnig augu með Juan Mata. Spánverjinn verður samningslaus í lok júnímánaðar en í gær var greint frá því að United hefði boðið honum nýjan samning. Barcelona hefur aðallega áhuga á Mata þar sem hann getur komið á frjálsri sölu en ætlar ekki að eltast sérstaklega við miðjumanninn.
Enski boltinn Spænski boltinn Tengdar fréttir United býður Mata nýjan samning Manchester United hefur boðið Juan Mata nýjan samning við félagið. 7. júní 2019 19:00 Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Óvænt alveg hættur Fótbolti Favre opinberar baráttu við Parkinsons: „Fékk þúsundir heilahristinga“ Sport Jake Paul keppir í 135 milljóna króna stuttbuxum gegn Tyson Sport Drukkinn undir stýri og enn í „lederhosen“ Fótbolti Býðst til þess að gefa þjófnum gullið í arf Sport Harðneitar því að hafa rekið við í leik Sport Krefjast aðgerða vegna verðlaunahafa Hvít-Rússa Sport Fleiri fréttir Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Endurkoma hjá Dagnýju Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Ferguson saknar fótboltans Alisson tæpur fyrir leikinn gegn Bournemouth Segir Arsenal sífellt betra en vill engar ásakanir um sálfræðistríð Alexander-Arnold reynir að kaupa Nantes Sjá meira
United býður Mata nýjan samning Manchester United hefur boðið Juan Mata nýjan samning við félagið. 7. júní 2019 19:00