Verkefnið byrjaði haustið 2018 og heldur áfram í óákveðinn tíma. Dóra átti lengi vel heima í Kaupmannhöfn þar sem hún opnaði og rak barina Jolene og Log lady með vinkonu sinni. Hún segist alltaf hafa haft þörf fyrir að skapa og vinna í hugmyndavinnu og þess vegna henti ljósmyndaformið henni vel.
Ég elska að geta séð eitthvað fyrir mér, eitthvað sem enginn sér og sjá það svo verða að verki
Dóra segir hugmyndina að verkefninu hafa komið þegar hún hlustaði á lagið „Green Grass“ eftir Tom Waits. Þar syngur hann aftur og aftur í laginu „Remember when you loved me“. Þá fór hún að hugsa um fyrrverandi ástarsambönd, bæði hennar eigin og ástarsambönd yfir höfuð.
Mér hefur alltaf fundist sorglegt að fólk skuli elska einhvern, annaðhvort til lengri eða skemmri tíma og svo deyi sú ást og gleymist einhvern veginn bara.
Þess vegna er ég að þessu. Til þess að heiðra ástina sem eitt sinn var.

Þegar ég byrjaði á því að kasta út auglýsingu á samfélagsmiðlum fékk ég mikið af fyrrverandi pörum sem voru til í þetta og kom mér það heldur betur á óvart. Ég hafði líka samband að fyrra bragði við fólk sem ég vissi að hefðu skilið og sumir treystu sér ekki út í þetta, skiljanlega þar sem það eru auðvitað alls konar tilfinningar í spilinu eftir að fólk hættir saman.
En í heildina hefur þetta verið mjög jákvætt og þess vegna langar mig að halda áfram.

Ég byrjaði að mynda „Remember when you loved me“ haustið 2018. Ég mynda fyrrverandi pör, hjón, elskendur, þekkt og óþekkt fólk á öllum aldri. Ég gaf mér aðeins fimm mínútur í byrjun verkefnisins til þess að mynda hvert par og hef haldið mig við þann tímaramma.

Andrúmsloftið getur verið svolítið rafmagnað þar sem sumir hafa kannski ekki hist eða talast við í mörg ár þegar þau koma í myndatöku. En það eru mómentin sem ég vil mynda, þessar fyrstu mínútur þegar fólk hittist aftur. Áður en því gefst tími til að stilla sér upp. Á meðan allar varnir liggja niðri. Það er svo mikil einlægni í þeim augnablikum.

Það hefur ekki gerst svo ég viti en ég hef svo sannarlega séð dæmi um að enn sé heitt í kolunum hjá sumum. Hins vegar hef ég dæmi um að fólk hafi orðið ágætis vinir aftur og það finnst mér fallegt!



