Kristín er orkumikil, lífsglöð og algjör A+ týpa að eigin sögn. Stefnan er tekin á að fara út á land í sumar og í haust ætlar hún jafnvel að skella sér út fyrir landsteinana.
Makamál fengu að kynnast Kristínu aðeins betur og spurðu hana um ástina og lífið.
1. Nafn?
Kristín Ruth Jónsdóttir.
2. Gælunafn eða hliðarsjálf?
Krilli- samt alls ekki kalla mig það.
3. Aldur í árum?
33 ára.
4. Menntun?
Félags- og fjölmiðlafræðingur.
5. Aldur í anda?
Maður hættir ekki að leika sér þegar maður verður gamall. Maður verður gamall þegar maður hættir að leika sér.
Ein með öllu.
7. Guilty pleasure kvikmynd?
Stella í orlofi.
8. Varstu skotin í einhverjum frægum þegar þú varst yngri?
Ekki sem ég man.
9. Talar þú stundum um þig í þriðju persónu?
Niii.
10. Syngur þú í sturtu?
Aldrei, býð ekki eyrunum mínum upp á það og ekki heldur nágrönnum.

Instagram, einhverjir myndu samt segja að það væri Outlook.
12. Hvaða persónueiginleikar finnast þér heillandi?
Traust, metnaður, heiðarleiki og einlægni.
13. Hvernig myndir þú lýsa þér í þremur orðum?
Dugleg, brosmild, ævintýragjörn.
14. Hvernig myndu vinir þínir lýsa þér í þremur orðum?
Jæks! Verður að spyrja vini mína. Líklega væri HRESS fyrsta orðið.
Makamál tók Kristínu á orðinu og hafði samband við nokkra vini hennar. Þetta var niðurstaðan: Hress, falleg og traust vinkona.
15. Ertu á Tinder?
Alls ekki!
Óheiðarleiki, vanvirðing, hroki og leti.
17. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera?
Það sem fær hjartað til að slá hraðar og upplifa hluti sem að ég hef ekki upplifað áður. Ferðast og sjá nýja menningu. Að hreyfa mig, vera úti og vera í kringum gott fólk.
18. Ef þú mættir velja einhverja þrjá einstaklinga úr sögunni (lífs eða liðna) til að bjóða í kvödmat og spjall, hverja myndir þú velja?
Vígdísi Finnboga, Steve Jobs og Barack Obama.
19. Býrðu yfir einhverjum leyndum hæfileikum?
Get verið á tveimur stöðum í einu.
20.Hvaða dýr værir þú ef þú værir dýr?
Blettatígur, allt í botn, engar bremsur.

Geri ekkert leiðinlegt.
22. Ertu A eða B týpa?
A+.
23. Hvernig viltu eggin þín?
Allskonar, fer eftir því hvaða vikudagur það er.
24. Hvernig viltu kaffið þitt?
Drekk ekki kaffi. Er til í Ripped.
25. Þegar þú ferð út að skemmta þér, á hvað staði ferðu?
Ég vel gott heimapartý frekar en bæinn.

Ef ég verð ekki komin eftir 5 mín, bíddu þá aðeins lengur.
27. Drauma stefnumótið?
Eitthvað út fyrir bæinn, góður matur, adrenalín, einhverja upplifun.
28. Einhver söngtexti sem þú hefur sungið vitlaust?
Vá ég syng remix útgáfur af öllum lögum.
29. Hvað horfðir þú á síðast á Netflix?
My next guest needs no introduction, David Letterman.
30. Hvað er ást?
Ást. Er það afl lífsins? Eitthvað sem allir ættu að upplifa í lífinu.
