Anton er 27 ára strákur úr Laugardalnum. Hann er nýútskrifaður lögfræðingur og áhugamaður um heilbrigðan lífstíl og vandaðar skjalatöskur.
Þú finnur Anton í Granda 101 þar sem hann æfir crossfit eða í steinapottinum í Laugardalslauginni.
Makamál fengu að heyra hver 10 bone-orðin hans Antons Egilssonar eru.

ON:
1. Ástríða. Konur sem hafa ástríðu fyrir einhverju, hvort sem það eru áhugamálin eða vinnan, eru verulega aðlaðandi. Það er eitthvað dularfullt og spennandi við fólk sem brennur fyrir einhverju.
2. Konur sem keyra jeppa. Ef þú ert kona og átt jeppa þá máttu bjóða mér á rúntinn. DM á Instagram, takk.
3. Gott skopskyn. Það grípur mig alveg um leið. Skemmtilegt fólk sem getur alltaf séð spaugilegu hliðarnar á málunum er instant turn on.
4. Ákveðni. Að lifa lífinu samkvæmt eigin sannfæringu og hafa trú á eigin getu eru atriði sem eru mjög hátt skrifuð í mínum bókum. Það helst einnig í hendur við gott sjálfstraust, sem er verulega heillandi í fari fólks.
5. Fallegir fótleggir. Ég er ekkert alltof upptekinn af útlitinu en fallegir fótleggir hitta alltaf í mark. Svo er ég sjálfur hátt í tveir metrar svo það skemmir ekki fyrir þegar konur eru í hávaxnari kantinum.

OFF:
1. Reykingar. Ef þú ert nýbúin að kveikja þér í einni Salem þá hef ég engan áhuga, takk og bless!
2. Ókurteisi í framkomu. Aðili sem sýnir ítrekað af sér ókurteisa framkomu við annað fólk skorar ekki hátt hjá mér.
3. Neikvæðni. Það er lítið spennandi við fólk sem sér lífið alltaf í neikvæðu samhengi. Á hinn bóginn er jákvæð orka afskaplega heillandi.
4. Afbrýðisemi. Það er skiljanlegt að verða stundum afbrýðisamur en það er verulega off þegar aðili er stöðugt afbrýðisamur út af minnstu smámunum.
5. Sakaskrá. Ef þú ert á sakaskrá þá er þetta búið spil, því miður. Ég er meira fyrir löghlýðnar konur á uppleið.

Makamál þakka Antoni kærlega fyrir svörin.