Norðanáttin að „leggja upp laupana“ og bjartviðri í kortunum Sylvía Hall skrifar 19. ágúst 2019 10:52 Það er von á bjartviðri næstu daga fyrir sunnan og vestan. Vísir/Vilhelm
Það er ekki útlit fyrir háar úrkomutölur í vikunni þar sem lægðirnar virðast ekki ná að komast með góðu móti inn á landið. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings þar sem segir jafnframt að norðanáttin sé að leggja upp laupana og í kortunum sé því óráðið veður. Útlit er þó fyrir dálitla vætu norðaustantil og hiti á bilinu 6 til 11 stig. Bjartviðri verður sunnan- og vestanlands með austlægri átt og gætu hitatölur náð allt að 16 stigum. Næstu daga má gera ráð fyrir því að hlýjast verði á Suður- og Vesturlandi og hiti allt að 17 stigum. Um helgina má búast við 9 til 15 stiga hita á landinu báða daga svo veðrið ætti að leika við maraþonhlaupara í miðborginni á Menningarnótt. Á laugardag er von á breytilegri átt og björtu veðri víða á landinu en stöku skúrum síðdegis vestantil. Á sunnudag má búast við lítilsháttar vætu suðvestantil en þurrt og bjart annarsstaðar.Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ miðvikudag:Austan 3-10 og 10-15 með suðurströndinni. Skýjað með köflum, en rigning syðst á landinu. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast vestanlands.Á fimmtudag:Fremur hæg austan átt. Dálítil ringing austantil á landinu en bjartviðri vestanlands. Hiti frá 8 stigum með austurströndinni upp í 17 stig vestanlands.Á föstudag:Norðaustan 5-10 og dálítil rigning eða súld norðan- og austantil, en hægari vindur og stöku skúrir um landið suðvestanvert. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast sunnanlands.Á laugardag:Hæg breytileg átt og víða bjart veður, en stöku síðdegis skúrir vestantil. Hiti 9 til 15 stig.Á sunnudag:Útlit fyrir suðaustanátt 5-10 m/s. Lítilsháttar væta suðvestantil á landinu en þurrt og bjart annarsstaðar. Hiti breytist lítið.
Veður Mest lesið Ríkisstjórnin sendi leiðréttingu inn í beina útsendingu Innlent „Það voru bara slagsmál, viltu senda bíl“ Innlent „Gjörsamlega samfélagslega ótækt“ að hafna kröfunni Innlent Sex hundruð miðar á vettvangi morðsins: „Fokking hálfvita fífl bæði tvö!!!!“ Innlent Tvö og hálft ár fyrir að nauðga dóttur nágranna síns Innlent Halldór Blöndal er látinn Innlent Nafn unga mannsins sem lést á Vesturlandsvegi Innlent Foreldrar hafa áhyggjur af börnum sínum með Sergio í Dúbaí Innlent Höfðu haldið til í ruslageymslunni dagana á undan Innlent Meina fólki frá fjölda ríkja að ferðast til Bandaríkjanna Erlent Fleiri fréttir Nafn unga mannsins sem lést á Vesturlandsvegi Stofnunum fækkar um tuttugu Ísland tekur höndum saman með Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjum Sex hundruð miðar á vettvangi morðsins: „Fokking hálfvita fífl bæði tvö!!!!“ Skilaboð Vestfirðings til stjórnvalda ekki útvarpshæf eftir 50 milljóna króna tjón Höfðu haldið til í ruslageymslunni dagana á undan Óska eftir myndefni frá Kársnesi vegna mannslátsins „Gjörsamlega samfélagslega ótækt“ að hafna kröfunni „Grafalvarlegt“ að Ísland fari gegn vísindalegri ráðgjöf Laxar struku úr landeldi í Eyjum Starfsáætlun þingsins kippt úr sambandi Faldi töflurnar í nammipoka Ekið á gangandi vegfaranda á Sæbraut Makríllinn enn hitamál og áfall í fiskeldi í Tálknafirði Hjálmar gefur ekki kost á sér Eyjamenn ósáttir við nýbirta samgönguáætlun Ríkisstjórnin sendi leiðréttingu inn í beina útsendingu Gæsluvarðhald vegna andláts í Kópavogi framlengt Tvö og hálft ár fyrir að nauðga dóttur nágranna síns Tuttugu þúsund fiskar drápust á Tálknafirði Segja frekari úrbóta þörf og vísa meðal annars til PPP Kröfu um að gera Margréti arflausa vísað frá Halldór Blöndal er látinn Kveiktu á 200 kertum fyrir drengina sem hafa látist í baráttu við fíkn „Þarna var bara verið að tikka í box“ Gaf lungnadeildinni sex ferðasúrefnistæki til að þakka fyrir sig Kraftaverk að Gunnari hafi verið bjargað þegar hann lenti í sjónum „Það voru bara slagsmál, viltu senda bíl“ „Þessir þrír flokkar til þess að gera tómar skeljar“ Foreldrar hafa áhyggjur af börnum sínum með Sergio í Dúbaí Sjá meira