Málstofa á morgun um þátttöku fyrirtækja í þróunarsamvinnu Heimsljós kynnir 9. september 2019 10:00 Fulltrúar frjálsu félagasamtakanna sem standa að vitundarvakningunni "Þróunarsamvinna ber ávöxt". Félag SÞ
Á morgun verður haldin málstofa um þátttöku fyrirtækja í þróunarsamvinnu. Málstofan er hluti af vitundarvakningunni Þróunarsamvinna ber ávöxt, sem öll helstu íslensku félagasamtökin í mannúðarstarfi og alþjóðlegri þróunarsamvinnu standa að í samvinnu við utanríkisráðuneytið. Átakið hófst í morgun og stendur út alla vikuna. Markmið málstofunnar í fyrramálið er að kynna fyrir fyrirtækjum, stórum sem smáum, tækifæri og ávinning þess að styðja við alþjóðlega þróunarsamvinnu. Málstofan fer fram á Nauthóli á morgun, 10. september, frá kl. 9:00-11:30. Fyrirtæki á borð við Marel, Íslandsbanka, Te og kaffi og Áveituna á Akureyri, koma til með segja frá reynslu sinni af þátttöku í alþjóðlegri þróunarsamvinnu. Á málstofunni verður jafnframt myndband frumsýnt sem fjallar um ýmis samstarfstækifæri fyrirtækja og félagasamtaka sem starfa á þessum vettvangi.Að mati forsvarsmanna Þróunarsamvinnu ber ávöxt, geta íslensk fyrirtæki lagt þung lóð á vogarskálar þróunarsamvinnu. „Með heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun er gert skýrt ákall eftir þátttöku fyrirtækja í brýnustu verkefnum á heimsvísu, sem eru meðal annars loftlagsaðgerðir ásamt útrýmingu hungurs og fátæktar í öllum sínum birtingarmyndum. Með því að leggja til þekkingu, búnað, vinnuafl eða fjármuni hafa mörg fyrirtæki breytt lífskjörum fjölda fólks, víðs vegar um heiminn,“ segir í kynningartexta um málstofuna. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra flytur opnunarávarp en fyrsta erindið er flutt af Hrund Gunnsteinsdóttur, framkvæmdastjóra Festu, og kallast „Ásetningur fyrirtækja að gera heiminn að betri stað.“ Þá ræðir Viktoría Valdimarsdóttir, sérfræðingur hjá ábyrgum lausnum, um ávinning fyrirtækja af þróunarsamvinnu. Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women, segir frá samstarfstækifærum fyrirtækja og félagasamtaka í þróunarsamvinnu og Sigurlilja Albertsdóttir, sérfræðingur hjá utanríkisráðuneytinu, kynnir samstarfssjóð við atvinnulíf um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Þá verða sagðar reynslusögur fyrirtækja af þátttöku í þróunarsamvinnu. Fundarstjóri er Logi Bergmann Eiðsson. Að átakinu standa Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, Rauði Krossinn, UN Women, UNICEF, SOS barnaþorpin, Barnaheill, ABC barnahjálp, Kristniboðssambandið, Hjálparstarf kirkjunnar, Sól í Tógó, ásamt utanríkisráðuneytinu.Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Mest lesið Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Innlent Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum Innlent „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Innlent Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Innlent Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Innlent Horfðu á bílinn velta hring eftir hring niður fjallið Innlent Eldur í Stykkishólmi Innlent „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Innlent „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Erlent Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Innlent