UEFA segir stóru deildirnar fimm taka of mikið fjármagn frá hinum deildum Evrópu Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 7. september 2019 08:00 Íslendingar hafa, líkt og aðrir Norðurlandabúar, mikinn áhuga á ensku úrvalsdeildinni vísir/getty
UEFA heldur því fram að stóru deildirnar í Evrópu, með ensku úrvalsdeildina í fararbroddi, séu að fara með stöðugleika í smærri deildum Evrópu með því að taka meira og meira fjármagn úr fótboltanum. Breska blaðið The Times birti frétt upp úr skýrslunni, en skýrslan hefur ekki enn verið gerð opinber. Í henni segir að deildirnar á Englandi, Spáni, Ítalíu, Þýskalandi og Frakklandi séu ítrekað að taka meira og meira af tekjum Evrópuboltans með sjónvarpsréttum á meðan fjármagn til hinna 50 aðildarfélöga UEFA hefur minnkað, þá helst vegna þess að minna af félagsskiptatekjum rennur til þeirra. UEFA vill nota skýrsluna sem mótrök gegn stóru deildunum fimm þegar þær mótmæla stækkun Meistaradeildar Evrópu. Þá gæti skýrslan einnig verið notuð sem grunnur að breytingum á því hvernig tekjum af sjónvarpsrétti verði dreift. Eitt dæmi í skýrslunni er að í Danmörku, Noregi og Svíþjóð sé sjónvarpsrétturinn á ensku úrvalsdeildinni hærri heldur en rétturinn á deildunum heima fyrir. Þessi þrjú lönd borguðu á síðasta tímabili 130 miljónir evra fyrir sýningarrétt ensku úrvalsdeidlarinnar, 122 milljónir fyrir deildirnar heima fyrir og 83 milljónir fyrir Meistaradeildina og Evrópudeildina.
UEFA Mest lesið Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Fótbolti O'Reilly átti sviðið og City tók titilinn Enski boltinn Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann Íslenski boltinn Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Fótbolti Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Enski boltinn „Það var erfitt að anda“ Íslenski boltinn Júlía Kristín sló Íslandsmet á HM Sport Verður Kepa aftur skúrkurinn? Enski boltinn Á sjúkrahús eftir yfirlið á landsleiknum Handbolti Dagskráin: Úrslitaleikur Arsenal og City Sport Fleiri fréttir O'Reilly átti sviðið og City tók titilinn Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Brobbey braut hjörtu svarthvítra Fleiri vilja sjá City vinna en Arsenal Verður Kepa aftur skúrkurinn? Báðir þurfa bikar Sjáðu klobbamark Beto og hvernig Welbeck afgreiddi Liverpool Löng bið Leeds eftir marki lengist Everton andar í hálsmál Chelsea eftir öruggan sigur Fulham blandar sér í Meistaradeildarbaráttuna Bras á gestunum og Brighton í Meistaradeildarbaráttu Ekitiké fór grátandi af velli Sjáðu mörkin og vítadómana sem United-menn eru æfir yfir Hér eftir verður það refsivert að smygla sér inn á leiki „Annaðhvort eru bæði brotin víti eða hvorugt“ Maguire fékk rautt og United missti tvívegis niður forystuna Arteta gaf ekkert upp um þátttöku Ödegaard í úrslitaleiknum Vandræðalegi markvörður Tottenham gæti átt strax endurkomu Yfirlýsing Liverpool: „Leikmenn okkar eru manneskjur en ekki skotmörk“ Býst við því að Salah jafni sig fljótt „Höfum gleymt ástæðunni fyrir því að VAR var tekið upp“ Guardiola: Liverpool-liðið hans Klopp er erfiðasta áskorunin en ekki Real „Þýðir mikið fyrir mig og leikmennina að fá ást frá stuðningsmönnunum“ Andy Carroll nýr stjóri Dagenham & Redbridge Mainoo, Maguire og Shaw eigi allir að fara á HM Segir að Anfield sé orðinn einn auðveldasti staðurinn til að spila á Vill verða varamaður Kane á HM í sumar Isak sást á æfingu Liverpool Pabbinn urðaði yfir þjálfara sem sá að sér Stórstjarnan biðlar til stuðningsmanna Liverpool Sjá meira