Búist við stormi á Faxaflóasvæðinu og á Suðurlandi Atli Ísleifsson skrifar 8. nóvember 2019 07:05 Á Faxaflóasvæðinu tekur viðvörunin gildi klukkan 19. vísir/vilhelm
Gular viðvaranir taka gildi á Suðurlandi og á Faxaflóasvæðinu síðdegis og í kvöld þar sem búist er við stormi og allt að 25 metrum á sekúndu. Á Suðurlandi tekur viðvörunin gildi klukkan fjögur og verður hvassast undir Eyjafjöllum. Búast má við mjög snörpum vindhviðum við fjöll, staðbundið yfir 35 metrum á sekúndu. Á Faxaflóasvæðinu tekur viðvörunin gildi klukkan 19 og þar verður hvassast á Kjalarnesi, við Hafnarfjall og í uppsveitum Borgarfjarðar. Búast má við mjög snörpum vindhviðum við fjöll, staðbundið yfir 35 metra á sekúndu, einkum á Kjalarnesi og við Hafnarfjall. Varasamt getur verið að vera á ferðinni, sérstaklega fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind, þar sem hálka getur verið á vegum. Fólk er hvatt til að sýna aðgát og ganga frá lausum munum til að forðast tjón. „Ekki mikil úrkoma með þessu og eins er hitinn nokkrum gráðum yfir frostmarki þannig að hálka á láglendi verður lítil sem engin. Lægir síðan um nóttina og á morgun, en á sunnudag gera spár ráð fyrir næstu lægð en nýjustu spár gera ráð stormi þá líka og jafnvel heldur hvassara en í dag. Hins vegar mun henni fylgja mun meiri úrkoma, aðallega rigning, en líkur eru á að bæði vindur og úrkoma fari yfir á nokkrum tímum yfir hádaginn,“ segir í tilkynningunni.Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ laugardag: Suðaustan 8-15 m/s, hvassast á Suðausturlandi. Rigning eða slydda á láglendi á suðurhelming landsins, en yfirleitt hægari og þurrt á norðanverðu landinu. Hiti 1 til 5 stig, en um frostmark norðanlands.Á sunnudag: Gengur í suðaustan storm, fyrst um landið SV-vert. Talsverð rigning og sums staðar slydda, en lengst af þurrt nyrðra. Lægir undir kvöld, en áfram hvasst A-til. Hiti 1 til 6 stig.Á mánudag: Suðaustlæg átt og úrkoma A-til, en annars víða þurrt. Hiti nálægt frostmarki.Á þriðjudag: Austan átt, él fyrir norðan og austan, en annars þurrt að kalla. Frost um mest allt land.Á miðvikudag: Austan og síðar norðaustanátt. Él fyrir norðan og frost, en slydda syðst og hiti um frostmark.Á fimmtudag: Útlit fyrir norðanátt með éljum um landið N-vert, en bjart á köflum syðra. Hiti breytist lítið.
Veður Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Fleiri fréttir Syrgja andlát starfsmanns Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira