Rafbíllinn Honda e verður forsýndur í Honda sal Bílaumboðsins Öskju að Fosshálsi 1 laugardaginn 4. janúar. Þessi nýi rafbíll verður aðeins til sýnis í stuttan tíma þar sem um forsýningu er að ræða. Forsala á Honda e hefst á sama tíma þann 4. janúar. Þá verður hægt að forpanta bílinn.
Það verður mikið um dýrðir á Fosshálsinum 4. janúar því ofursportbíllinn Honda NSX verður einnig til sýnis á sýningunni.
Honda e verður nýjasta viðbótin í úrval rafbíla á Íslandi. Honda e er 154 hestafla rafbíll og togið 315 Nm sem skilar tafarlausri og þýðri hröðun án gírskiptinga. Akstursdrægi Honda e er allt að 220 km. Bíllinn er hlaðinn í gegnum aðgengilegt hleðsluinntak á vélarhlífinni. Hægt er að ná 80% hleðslu inn á rafhlöðu á 30 mínútum.
Honda e einstaklega lipur bíll og beygjuhringurinn er einungis 4,3 metrar. Handfrjáls bílastæða aðstoð Honda gerir mögulegt að leggja í jafnvel þrengstu bílastæði.
„Honda e er tæknivæddur og snjall bíll. Hægt er að eiga samskipti við hann með My Honda+ appinu í gegnum snjallsíma. Stafrænt mælaborð í fullri breidd heldur ökumanni upplýstum, býður upp á afþreyingu og tengir ökumann við það sem hann kann best að meta. Honda e er búinn háskerpumyndavélum sem leysa hliðarspegla af hólmi. Með þessu eykst yfirsýn og það dregur úr heildarbreidd bílsins,“ segir í tilkynningu frá Öskju.
„Það verður vatn á myllu bílaáhugafólks að koma í Honda salinn 4. janúar því þá verður einnig hinn nýi og magnaði ofursportbíll NSX frumsýndur,“ segir ennfremur í tilkynningu frá Öskju.

NSX er tengiltvinnbíll með 3,5 lítra V6 vél með tveimur forþjöppum og þremur rafmótorum. Þetta er gríðarlega aflmikill sportbíll. Tengiltvinnvélin skilar bílnum 573 hestöflum og hann er aðeins 3 sekúndur úr kyrrstöðu í hundraðið. Hámarkshraðinn er 319 km/klst.
Bílaumboðið Askja er umboðsaðili Honda á Íslandi en fyrirtækið tók við umboðinu í nóvember síðastliðnum. Honda er þar með þriðji bílaframleiðandinn sem Askja hefur umboð fyrir er Askja umboðsaðili Mercedes-Benz og Kia.