Fjölbreytt þjóðhátíðardagskrá um land allt Andri Eysteinsson og Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifa 17. júní 2020 10:58 Frá hátíðarhöldum í dag. Vísir/Bjarni
Hátíðarhöld vegna þjóðhátíðardags Íslendinga verður með breyttu sniði í ár vegna kórónuveirufaraldursins sem gengið hefur yfir undanfarna mánuði. Fjöldatakmarkanir munu setja svip sinn á daginn en víða hefur verið blásið til hverfishátíða og fólk hefur verið hvatt til að fagna deginum í faðmi nánustu vina og ættingja heima fyrir. Reykjavík Hefðbundin dagskrá verður á Austurvelli í dag sem sýnd verður í beinni útsendingu á RÚV og geta allir landsmenn því fylgst með athöfninni heima í stofu. Forsætisráðherra mun ávarpa þjóðina og Fjallkonan frumflytja sérsamið ljóð í tilefni dagsins. Þá munu nýstúdentar leggja blómsveig við leiði Jóns Sigurðssonar og Ingibjargar Einarsdóttur í Hólavallakirkjugarði að lokinni morgunathöfn á Austurvelli, forseti borgarstjórnar flytur ávarp og skátar standa heiðursvörð. - Hönnunarmars í Ráðhúsinu: Sýningin Næsta stopp um Borgarlínuna og uppbyggingu hennar er nú í Ráðhúsinu og eru allir hvattir til að afla sér þar upplýsinga um Borgarlínuverkefnið. - Fólk er hvatt til að skreyta hús og híbýli með íslenska fánanum og taka þátt í leiknum Teljum fána sem er innblásin af einni vinsælustu afþreyingu ársins. Á þjóðhátíðardag eru fánar taldir í stað bangsa. Tvö heppin hljóta verðlaun fyrir fjölda fána sem taldir eru. - Viðburðir í miðbæ Reykjavíkur: DJ Dóra Júlía sér um tónlist á Klambratúni og geta gestir gætt sér á veitingum úr matarvögnum á vegum Götubita auk þess sem sirkuslistafólk Hringleiks sýna listir sínar. - Hægt verður að heyra lúðrasveitarþyt í Miðborginni á milli kl. 13-18, sirkuslistafólk Sirkuss Íslands sýnir, kórar, Listhópar Hins hússins og Götuleikhúsið bregða á leik víðs vegar um Miðborgina til að skapa óvæntar upplifanir. - Þá verða sundlaugar í Reykjavík opnar frá kl. 9 til kl. 22 nema Sundhöllin og Laugardalslaug sem verða opnar frá kl. 8 - 22. Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn verður opinn frá 10-20 Hafnarfjörður Íbúar í Hafnarfirði eru hvattir til að fagna deginum heima í ár og um leið njóta þess sem bærinn hefur upp á að bjóða. Fánar voru dregnir að húni í morgun og klukkan 10 var söguskilti Byggðarsafns Hafnarfjarðar opnað. Þá munu Stefán Helgi Stefánsson og Helgi Már Hannesson heimsækja sjúkrastofnanir og flytja íslenskar dægurperlur. - Sundlaugar Hafnarfjarðarbæjar verða opnar í dag og er frítt fyrir 17 ára og yngri. Enn eru fjöldatakmarkanir í Suðurbæjarlaug vegna viðhaldsviðgerða. - Bókasafn Hafnarfjarðar, Hafnarborg og Byggðasafn Hafnarfjarðar verða opin í dag til klukkan fimm. - Reykjavík Street Food verður með matvagna á Víðisstaðatúni frá klukkan 13 til 16. - Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins mun aka um nokkrar götur í Hafnarfirði með blá ljós og íslenska fánanum á milli klukkan 11 og 14. - Óvæntar uppákomur verða víða um bæinn. Lúðrasveit Hafnarfjarðar, Listahópur Vinnuskólans, álfar og ævintýrapersónur verða á ferð um bæinn. Kópavogur Áhersla verður lögð á smærri hverfishátíðir auk þess sem bílalest fer um bæinn með Línu langsokk og Ronju ræningjadóttur í broddi fylkingar. - Sviðum verður komið upp og munu tónlistarmenn og skemmtikraftar stíga á stokk. Þeirra á meðal eru Saga Garðarsdóttir, Villi Neto, Villi Naglbítur, GDRN, Jón Jónsson og Friðrik Dór auk Herra Hnetusmjörs. - Hoppukastalar og tívolítæki verða einnig á hverfishátíðunum. - Menningarhúsin í Kópavogi verða opin með tilheyrandi dagskrá. - Opið verður í Sundlaug Kópavogs til klukkan sex. Akureyri Ekki verður safnast saman í Lystigarðinum eða miðbænum eins og hefð er fyrir en þess í stað verður sérstakur blómabíll á ferð um bæinn og hefst skemmtidagskrá fyrir yngri kynslóðina á flötinni austan við Minjasafnið klukkan þrjú. Lúðrasveit Akureyrar mun þenja lúðra, skátarnir hefja fána á loft og boðið verður upp á skemmtidagskrá fyrir börn. Hátíðarhöld og viðburðir verða á sex stöðum í bænum. - Lögmannshlíð - Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri flytur ávarp, heiðursvörðu og fánahylling. Kvennakór Akureyrar flytur þjóðsönginn og séra Sindri Geir Óskarsson fer með bænagjörð og blessun. Lúðrasveit Akureyrar spilar. - San Síró - Leikhópurinn Lotta skemmtir krökkum á öllum aldri á grasflötinni austan Lundarskóla. - Hlíð - Kvennakór Akureyrar flytur lög og Fjallkonan ávarpar gesti. Fjallkonan í ár er Sigurlína Guðný Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur úr framvarðarlínu Sak í baráttunni gegn kórónuveirunni. Lúðrasveit Akureyrar spilar og jafnréttisviðurkenning Akureyrarbæjar verður afhent. - Þá verður skrúðganga gengin klukkan þrjú og skátatívolí og hoppukastalar verða á Minjasafnsflötinni. - Skipverjar á eikarbátnum Húna bjóða upp á siglingu um Pollinn. Egilsstaðir Íbúar eru hvattir til að flagga íslenska fánanum sem víðast og njóta dagsins. Fjórar sýningar verða opnaðar í Safnahúsinu og í Sláturhúsinu. Sýning með verkum listamannsins Guy Stewart verður til að mynda opnuð. - Klukkan 14:00 verður opnuð í Safnahúsinu sýning Guy Stewart sem ber yfirskriftina Flugdrekabók. Sýningin samanstendur af sjö flugdrekabókum sem hver og ein er tileiknuð fornu bókmenntaverki. - Sýningin Tengsl, yfirlitssýning á verkum stöðfirska listamannsins Ríkharðs Valtingojer opnar klukkan 15 í Sláturhúsinu og uppákoma verður fyrir utan fyrir börnin. - Tékkneska listakonan Monica Frycova, sem búsett er á Seyðisfirði, segir frá verki sínu „Pure Mobile vs Dolce Vita“ sem var ferðalag hennar á mótorhjóli, með saltfisk í farteskinu, frá Borgarfirði eystri til Portúgal. Kvikmynd verður sýnd um ferðalagið klukkan 16:30 og boðið verður upp á borgfirskan saltfisk. - Sýningin „Austfirskt fullveldi – sjálfbært fullveldi,“ verður sett upp á nýjan leik en sýningin hlaut nýverið tilnefningu til Íslensku safnaverðlaunanna. Ísafjörður Ísfirðingar eru hvattir, líkt og íbúar fleiri bæjarfélaga, til þess að flagga íslenskum fána, klæða sig upp og gera sér glaðan dag í dag. Hátíðahöld verða með öðrum hætti en venjulega en hátíðardagskrá verður þó á Silfurtorgi. - Klukkan 11:00 er hátíðarmessa haldin í Ísafjarðarkirkju - Körfuknattleiksdeild Vestra býður upp á ratleik sem fer fram milli 13 og 15 en klukkan 14 hefst hátíðardagskrá á Silfurtorgi. - Lúðrasveit og hátíðarkór munu flytja tónlistaratriði en Súsanna Björg Ástvaldsdóttir yfirlæknir hjá HSV heldur hátíðarávarp. Fjallkonan verður þá á sínum stað. - Klukkan 14 hefst þá einnig barnaleikrit í Neðstakaupstað þar sem Komedíuleikhúsið sýnir leikritið Iðunn og eplin. Hrafnseyri við Arnarfjörð Á fæðingarstað Jóns Sigurðssonar, Hrafnseyri við Arnarfjörð, verður hátíðardagskrá líkt og hefð er fyrir. Dagskráin hefst klukkan 13:00 en boðið er upp á fríar rútuferðir til og frá Ísafirði 11:30 og 17:00. -Sr. Hildur Inga Rúnarsdóttir, sóknarprestur á Hrafnseyri þjónar fyrir altari í hátíðarguðsþjónustu sem hefst klukkan 13:00. - Jón Gunnar Biering Margeirsson, Dagný Arnalds og Rúna Esradóttir leika ljúfa tóna við setningu hátíðarinnar klukkan 14:15 en Guðbergur Bergsson rithöfundur fer með hátíðarræðuna í ár. - Háskólahátíð í tilefni af útskriftum vestfirskra háskólanema hefst 15:00, kynnir er prófessor Guðmundur Hálfdanarson. Þar að auki verður opnun á myndlistarsýningu Margrétar Jónsdóttur frá Akureyri.
17. júní Ísafjarðarbær Fljótsdalshérað Akureyri Reykjavík Hafnarfjörður Kópavogur Mest lesið „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Innlent Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif Innlent Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Viðskipti innlent Löng röð í öryggisleitina þriðja daginn í röð Innlent Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Innlent Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Erlent Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Erlent Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Innlent Hringvegurinn lokaður í gegnum Borgarnes annað kvöld Innlent Fannst hann ekki geta haldið áfram Erlent Fleiri fréttir Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Þyrlan sækir slasaðan mann á Hestfjall Miðflokksmenn helmingi líklegri til að segja já en Sjálfstæðismenn Ósátt með fyrirhugaða sameiningu lögregluembætta Grindvískir krakkar sneru aftur á völlinn Lögnin komin á land en verður látin kyrr liggja „Önnur ríki með sérþarfir hafa miklu meira vægi í þeirri umræðu“ Bananastappa og hlaupbangsar á matseðlinum í tilraun tvö Velti allt á því hverjir mæti á kjörstað Allt hnífjafnt í nýjum þjóðarpúlsi og reynt aftur við Lagarfljót Hringvegurinn lokaður í gegnum Borgarnes annað kvöld Löng röð í öryggisleitina þriðja daginn í röð „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Leituðu manns sem átti að vera vopnaður rafbyssu Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina „Klukkan tifar“ Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif „Við hefðum viljað samráð frekar en samtal“ Bændur í baráttuhug á leið í herferð um landið Flaggskip kólumbíska sjóhersins býður almenningi um borð Enginn marktækur munur á jáurum og neiurum ESB-barátta, hiti meðal kennara og vændisskilti í Suðursveit Forsetahjónin halda til Eistlands Ökumaður á sjúkrahús eftir slys á Fljótsheiði Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Bændur segja nei Ólafur Þór má rannsaka hlut Jóns Óttars í Samherjamálinu Skipar Eirík og Hildi sem landsréttardómara Landrisi í Öskju er lokið Sjá meira