Innlent

Stafræna ökuskírteinið uppfærist daglega

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Ríkislögreglustjóri, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, dómsmálaráðherra og fjármálaráðherra vígðu stafrænu ökuskírteinin á blaðamannafundi í morgun.
Ríkislögreglustjóri, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, dómsmálaráðherra og fjármálaráðherra vígðu stafrænu ökuskírteinin á blaðamannafundi í morgun. ELÍSABET INGA

Nú er hægt að sækja stafrænt ökuskírteini í snjallsímann. Skírteinið gildir aðeins á Íslandi og segir samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra þetta framfaraskref þrýsta á önnur ríki að fara sömu leið.

Formlega var opnað fyrir aðgang að stafrænum ökuskírteinum á blaðamannafundi í morgun.

„Þetta vonandi einfaldar líf fólks. Ekki síst í umferðinni þegar sýna þarf fram á ökuréttindi en líka þegar sýna þarf skilríki t.d. í apóteki, áfengisversluninni eða við kosningar,“ sagði Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra.

Sótt er um stafrænt ökuskírteini á vefnum island.is þar sem notendur auðkenna sig með rafrænum skilríkjum. Með samþykki notanda fer sjálfvirkt umsóknarferli í gang og samstundist birtist tengill til að sækja skírteinið í símann. Síðan hefur verið hæg í dag sökum þess hve mikil umferð er inn á hana. 

„Fólk þarf auðvitað að passa sig að vera ekki að senda skjámynd af skírteininu sínu í heild. Því á því er bæði kóði og númer sem eru auðvitað persónuskilríki þannig það þarf að gæta að því,“ sagði Áslaug Arna.

Stafræna ökuskírteinið er jafn gilt skilríki og þetta útprentaða.stöð 2

Áslaug segist ekki hrædd um að stafrænt skírteini bjóði upp á möguleika til misnotkunar.

„Það er kóði sem þarf að skanna til að sjá hvort þetta sé virkt í þínum réttum síma og annað. Síðan er það hreyfanlegt og erfitt að falsa það þar sem það er líka tvöfalt öryggi inni á síðunni þar sem þú þarft að skrá þig inn tvisvar með rafrænum skilríkjum þegar þú ert að sækja kortið,“ sagði Áslaug Arna.

Ísland er annað ríkið í Evrópu til að taka stafrænu skírteinin í notkun og fetum við þar með í spor Norðmanna.

„Evrópusambandsríkin og Evrópusambandið er ekki tilbúið að viðurkenna rafræn skírteini eins og er,“ sagði Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.

Frá blaðamannafundi í morgun.ELÍSABET INGA

Stafræna ökuskírteinið gildir því einungis hér á landi.

„Þetta er ábyggilega þrýstingur á önnur ríki að fara sömu leið,“ sagði Sigurður Ingi.

Stafræna ökuskírteinið uppfærist daglega svo ekki sé hægt að misnota skírteinið missi fólk ökuréttindi.

„Á hverjum degi er það í réttum lit. Það er bleikt ef þú ert með gild ökurétindi en ef þú hefðir misst prófið í gær væri það orðið grátt í dag,“ sagði Áslaug Arna.

„Þetta hjálpar örugglega mörgum því margir gleyma ökuskírteininu en sjaldnast símanum,“ sagði Sigurður Ingi.

Sextán þúsund hafa sótt stafræn ökuskírteini það sem af er degi að sögn Vigdísar Jóhannsdóttur markaðsstjóra Stafræns Íslands. 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×