Brúin yfir Geirsá hangir á bláþræði Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 13. júlí 2020 21:49 Brúnni yfir Geirsá hefur verið lokað. Mynd/Elmar Snorrason
Brúin yfir Geirsá neðst í Reykholtsdal hrundi að hluta í morgun og hefur nú verið lokað fyrir umferð yfir brúna. Brúarbitarnir hvíla á trébúkkum og hrundi annar þeirra þegar steypudælubíll keyrði yfir brúna. Brúin hangir þó enn uppi en hefur sigið talsvert að sögn Valgeirs Ingólfssonar hjá Vegagerðinni en Skessuhorn greindi fyrst frá. Steypudælubíllinn slapp yfir brúna en hún er nú ófær öllum ökutækjum. Brúin er á vegi sem er ekki lengur á skrá hjá Vegagerðinni og er það því ekki á borði Vegagerðarinnar að annast viðhald brúarinnar eða vegarins. Brúin hvílir á viðarstöplum sem eru orðnir fúnir og hrundi annar þeirra í dag.Elmar Snorrason „Þetta er gömul brú og hún stendur á timburstaurum og þeir eru bara fúnir,“ segir Valgeir í samtali við fréttastofu. Hann segir það óvíst hvort viðhaldið sé á borði sveitarfélagsins, landeigenda eða jafnvel engra en vel sé hægt að gera að brúnni. „Ég held það sé hægt að lyfta henni upp og byggja bara nýtt undir hana,“ segir Valgeir.
Samgöngur Borgarbyggð Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Erlent Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Erlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik Innlent Fleiri fréttir Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Sjá meira