Bílar með aftanívagna ættu ekki að vera á ferðinni á svæðinu að sögn veðurfræðings Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 25. júlí 2020 12:30 Veðurstofa Íslands hefur gefið út tvær gular viðvaranir vegna hvassviðris í kvöld og í nótt. Vísir/vilhelm
Veðurstofan hefur gefið út tvær gular viðvaranir vegna hvassviðris í kvöld og í nótt. Þær ná til Suðausturlands og Faxaflóa þar sem búist er við að vindhviður verði sterkar en þar er ekki ráðlagt að keyra um með aftanívagna að sögn veðurfræðings. Í Faxaflóa er búist við að hvassast verði á sunnanverðu Snæfellsnesi. Vindhviður verði snarpar og fari sums staðar yfir 25 metr á sekúndu. Aðstæður verði sömuleiðis ekki góðar fyrir ferðalanga undir Hafnarfjalli og þá sérstaklega fyrir ökutæki með aftanívagna. Gul viðvörun tekur gildi á svæðinu klukkan 17. „Það er fyrst og fremst vegna vinds núna seinni partinn á sunnanverðu Snæfellsnesi og norðan til á Faxaflóanum. Það er þá sérstaklega fyrir bíla sem eru með aftanívagna, hjólhýsi og þess háttar. Þeir ættu ekki að vera á ferðinni þar,“ Sagði Haraldur Eiríksson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands. Á svæðinu er búist við að veðrið verði verst norðan Borgarfjarðar og um allt Snæfellsnes. Gul viðvörun tekur gildi klukkan 21 í kvöld á Suðausturlandi. Þar er búist við norðaustan 13 til 20 metrum á sekúndu og snörpum vindhviðum við fjöll. En þær eru sagðar geta farið yfir 25 metra á sekúndu undir Öræfajökli og í Mýrdalnum. Þar geti einnig skapast varasöm akstursskilyrði og þá sérstaklega fyrir bíla með aftanívagna. Útlit er fyrir að vind taki að lægja í fyrramálið. „Það er lítils háttar rigning í dag og norðaustan strekkingur víða. Það bætir í úrkomuna í kvöld og rignir um allt land í nótt en styttir smám saman upp á morgun,“ sagði Haraldur.
Veður Tengdar fréttir Gular viðvaranir vegna hvassviðris Veðurstofa Íslands hefur gefið út tvær gular viðvaranir vegna hvassviðris í kvöld og í nótt. Þær ná til Faxaflóa og Suðausturlands þar sem búist er við að vindkviður verði sterkar og að varasamt geti verið að keyra um svæðin. 25. júlí 2020 09:03 Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Erlent „Ég elska Obbu“ Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Fleiri fréttir Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Sjá meira
Gular viðvaranir vegna hvassviðris Veðurstofa Íslands hefur gefið út tvær gular viðvaranir vegna hvassviðris í kvöld og í nótt. Þær ná til Faxaflóa og Suðausturlands þar sem búist er við að vindkviður verði sterkar og að varasamt geti verið að keyra um svæðin. 25. júlí 2020 09:03