Ótrúlegt ár Liverpool | Sjáðu tölurnar Henry Birgir Gunnarsson skrifar 3. janúar 2020 08:00 Rauði herinn er óstöðvandi. vísir/getty
Liverpool varð í gær aðeins þriðja lið sögunnar sem nær að fara í gegnum heilt ár í ensku úrvalsdeildinni án þess að tapa leik. Rauði herinn er búinn að spila 37 leiki án þess að tapa og hefur í leiðinni krækt í 101 stig. Síðasta tap liðsins í deildarkeppni kom þann 3. janúar 2019 er Liverpool tapaði gegn Man. City, 2-1. Bítlaborgarliðið vann 32 af þessum 37 leikjum sínum og er því með 2,73 stig að meðaltali í leik. Er Man. City náði 100 stigum á einu tímabili þá fékk liðið 2,63 stig að meðaltali í leik. Liðið er með þrettán stiga forskot á toppi deildarinnar og hefur nú skorað í 29 leikjum í röð og er með 89 skoruð mörk á síðasta ári. Arsenal var fyrsta liðið sem fer í gegnum heilt ár án þess að tapa og spilaði 49 leiki í röð án þess að tapa. Inn í þeirri tölu er öll leiktíðin 2003-04. Chelsea er hitt liðið en Chelsea tapaði ekki leik frá október 2004 til nóvember 2005. Einu töp Liverpool á Englandi á síðasta ári komu gegn Wolves í bikarnum síðasta janúar og svo tapaði unglingalið félagsins gegn Aston Villa í deildabikarnum í síðasta mánuði. Ef vítakeppni telur þá má taka inn í Samfélagsskjöldinn líka. Liverpool tapaði tvisvar í Meistaradeildinni gegn Barcelona og Napoli. Þrátt fyrir þessa ótrúlegu siglingu vann Liverpool engan bikar á Englandi á síðasta tímabili en það er að fara að breytast í ár. Liðið vann aftur á móti Meistaradeildina, Ofurbikar UEFA og Heimsmeistarakeppni félagsliða.Stigasöfnun í ensku úrvalsdeildinni árið 2019: 1. Liverpool - 101 stig 2. Man. City - 92 3. Leicester - 66 4. Chelsea - 64 5. Man. Utd - 59 6. Wolves - 58
Enski boltinn Mest lesið „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Madrídingar á tæpasta vaði Fótbolti Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Körfubolti Naumur sigur dugði City Enski boltinn Marlena er sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Enski boltinn Fleiri fréttir „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Endurkoma hjá Dagnýju Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Ferguson saknar fótboltans Alisson tæpur fyrir leikinn gegn Bournemouth Segir Arsenal sífellt betra en vill engar ásakanir um sálfræðistríð Alexander-Arnold reynir að kaupa Nantes Með tvær ferðatöskur af fíkniefnum Sjá meira