Þetta fellur niður eða raskast vegna óveðursins Kristín Ólafsdóttir skrifar 13. febrúar 2020 22:52 Hagkaup hefur auglýst breyttan opnunartíma verslana sinna á morgun vegna óveðursins. Gert er ráð fyrir að flestar þeirra opni um hádegisbil á morgun. Vísir/Rakel
Þjónusta verður víða skert á suðvesturhluta landsins á morgun vegna aftakaveðurs. Veðurviðvaranir taka þegar gildi í nótt og mun veðrið ná hámarki í fyrramálið. Hér að neðan má nálgast lista yfir þjónustu sem skerðist eða liggur niðri vegna óveðursins. Rauðar viðvaranir eru í gildi á fjórum landsvæðum á morgun; höfuðborgarsvæðinu, Faxaflóa, Suðurlandi og Suðausturlandi. Á rauðu svæðunum verður um að ræða austan ofsaveður, rok eða jafnvel fárviðri. Fólk er víðast hvar hvatt til að halda sig heima, hafi það tök á. Skólahald og félagsþjónusta Reglulegt skólahald fellur niður á öllu höfuðborgarsvæðinu á morgun en leikskólar og grunnskólar verða engu að síður opnir með lágmarksmönnun fyrir fólk sem þarf nauðsynlega á vistun fyrir börn sín að halda – það er fólk sem sinnir neyðarþjónustu, löggæslu, slökkvistörfum og björgunarsveitarútköllum. Frístundaheimili opna þegar viðvörunum lýkur klukkan 15 en þá fellur appelsínugul viðvörun úr gildi á höfuðborgarsvæðinu eins og staðan er núna. Þá verða sumar bæjarskrifstofur lokaðar en símsvörum þó sinnt. Sundlaugar á höfuðborgarsvæðinu verða lokaðar til klukkan 15. Söfn á höfuðborgarsvæðinu verða lokuð nema annað verði tilkynnt. Borgarbókasafnið, Landnámssýningin og Ljósmyndasafn Reykjavíkur verða þó opnuð klukkan 15 ef veður leyfir. Þjónustumiðstöðvar í Reykjavík verða lokaðar til klukkan 15 og skerðing verður á þjónustu til heimahjúkrunar en neyðartilvikum sinnt eftir föngum. Ferðaþjónusta fatlaðra fellur niður fram að hádegi. Allt skólahald í leikskólum og grunnskólum í Borgarbyggð, Sveitarfélagsins Árborgar og Grindavík fellur niður á morgun. Ekki er talið líklegt að veður trufli skólahaldi á Akureyri á morgun, þrátt fyrir að þar verði appelsínugul viðvörun í gildi. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðum viðkomandi bæjarfélaga. Kennsla fellur niður í Háskóla Íslands á morgun.Vísir/Vilhelm Þá fellur kennsla niður í báðum háskólum höfuðborgarsvæðisins, Háskóla Reykjavíkur og Háskóla Íslands, á morgun. Kennsla fellur einnig niður í framhaldsskólum í höfuðborginni. Tilkynningar þess efnis hafa til að mynda verið birtar á heimasíðum Menntaskólans í Reykjavík, Kvennaskólans í Reykjavík, Fjölbrautaskólanum í Breiðholti, Fjölbrautaskólanum í Ármúla, Framhaldsskólanum í Mosfellsbæ og Verzlunarskóla Íslands. Nemendur eru víðast hvar hvattir til að nýta tímann vel og fylgjast með tilkynningum á námsnetum skólanna. Samgöngur Öllum akstri hjá Strætó á höfuðborgarsvæðinu verður aflýst í fyrramálið. Búast má við frekari upplýsingum milli kl. 10 og 11 á morgun. Hér má svo nálgast uppfærða töflu Vegagerðarinnar yfir þá sem lokað verður á morgun vegna óveðursins. Öllu innanlandsflugi hefur jafnframt verið aflýst á morgun. Þá hefur Icelandair aflýst 22 flugferðum til og frá Evrópu. Heilbrigðisþjónusta Allar bókaðar móttökur á starfsstöðvum Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins falla niður í fyrramálið. Heilsugæslustöðvar verða opnar á þessum tíma með lágmarksmönnum sem sinnir bráðavandamálum. Reynt verður að ná í þá sem eiga bókaða tíma og finna nýjan tíma eins fljótt og hægt er. Pósturinn Á morgun verður engin starfsemi hjá Póstinum á þeim svæðum þar sem rauð veðurviðvörun er í gildi. Á öðrum svæðum þar sem appelsínugul viðvörun er í gildi verða aðstæður metnar í fyrramálið. Búast má við röskun á þjónustu um allt land á morgun. Ef veður og aðstæður batna til muna verður brugðist við því á viðeigandi hátt. Kringlan er lokuð til hádegis á morgun.Vísir/vilhelm Verslun og önnur þjónusta Lokað verður í Kringlunni til klukkan 12 á hádegi. Vandlega verður fylgst með þróun veðurs og verður tilkynnt á heimasíðu Kringlunnar ef breyting verður frá áætlaðri opnun. Skrifstofur VR verða lokaðar á morgun. Þá verður skert starfsemi hjá Skeljungi á morgun. Engin dreifing verður á eldsneyti og verður skrifstofa Skeljungs lokuð þar til veður hefur gengið yfir. Sjálfsafgreiðslustöðvar Orkunnar verða opnar en Skeljungur hvetur landsmenn að fylgja ráðum almannavarna og Veðurstofu í hverjum landshluta. Þá hefur Hagkaup auglýst breyttan opnunartíma verslana sinna á morgun vegna óveðursins. Hagkaup í Skeifu og Garðabæ loka klukkan fjögur í nótt og opna aftur þegar veður leyfir, líklegast um hádegisbil á morgun. Í Spöng, á Eiðistorgi og á Akureyri verður opið til miðnættis líkt og venjulega. Verslanirnar opna aftur um hádegisbil á morgun. Verslanir í Kringlu, Smàralind, Selfossi og Njarðvík opna á hádegi nema veður komi í veg fyrir það. Framkvæmdastjóri Krónunnar sagði í samtali við Vísi í kvöld að staðan yrði tekin snemma í fyrramálið og metið hvort verslanir Krónunnar yrðu opnaðar á venjulegum opnunartíma eða jafnvel eftir hádegi. Fylgjast má með nýjustu tíðindum af veðrinu í veðurvakt Vísis hér.
Veður Mest lesið Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Innlent Fá engar bætur fyrir stolin bíl Innlent Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Erlent Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Innlent Hjörtur Torfason er látinn Innlent „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Innlent Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Erlent „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Innlent Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Innlent Fleiri fréttir Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Hjörtur Torfason er látinn Fá engar bætur fyrir stolin bíl „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Ekkert fundist af báti sem sagður er hafa hvolft Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Njósnari sér að sér og synt í kring um Ísland Vill deila þekkingu á jarðvarma með Úkraínu Bað forseta að taka „stjórnarliða á skólabekk og tukta þá til“ Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Blindir vilja Hljóðbókasafnið heim Stjórnarandstaða kvartar undan starfi í velferðarnefnd Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Úlfar hættir sem lögreglustjóri Ráðherra hafnaði loftslagsrannsókn vegna ófullnægjandi lagaramma Hafnar því alfarið að hafa lekið gögnunum Nú má heita Gúníta Ljósynja Dawn Fólk varað við aukinni hættu á gróðureld Sala á Íslandsbankabréfum hafin og Jón Óttar sakar Ólaf Þór um leka Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Miðhúsabraut lokuð eftir að ekið var á vegfaranda á hlaupahjóli Sjá meira