Innlent

Þriggja daga verkfall framundan

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Barn sótt snemma á leikskólann vegna verkfalls Eflingar á þriðjudag fyrir viku.
Barn sótt snemma á leikskólann vegna verkfalls Eflingar á þriðjudag fyrir viku. Vísir/vilhelm

Fyrirhugað verkfall félagsmanna Eflingar sem starfa hjá Reykjavíkurborg hefst kl 12:30 á morgun og lýkur á miðnætti fimmtudaginn 13. febrúar. Fundi samninganefnda deiluaðila var frestað í dag þar sem ríkisáttasemjari mat það svo að samninganefndirnar þyrftu að undirbúa sig betur við frekari samningaviðræður.

„Það kom mér á óvart að heyra þetta en við munum kappkosta að mæta vel undirbúin á næsta fund,“ sagði Harpa Ólafsdóttir, formaður samninganefndar Reykjavíkurborgar.

Aðspurð um hvort að samninganefnd borgarinnar hefði í huga að koma til móts við kröfur Eflingar í kjaradeilunni vísaði hún í að í dag var tilkynnt að félagsmenn sautján félaga Starfsgreinasambandsins hafi samþykkt kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga sem undirritaður var um miðjan síðasta mánuð.

Hátt í tvö þúsund starfsmenn Eflingar hjá borginni lögðu niður störf í tvígang í síðustu viku til að krefjast betri kjara, en aukinn þungi mun færast í verkfallsaðgerðirnar á morgun þegar starfsfólkið leggur aftur niður störf í tvo og hálfan sólarhring frá og með hádegi á þriðjudaginn.

„Við höfum verið að bjóða það sama og þar hefur verið samþykkt. Það þýðir að í lok samnings eru félagsmenn Eflingar með um 400 þúsund og deildarstjórar á leikskóla ófaglærðir væru með 520 þúsund þannig að þetta er alveg á sömu nótum og aðrir hafa verið að semja um,“ sagði Harpa.

Verkfallið mun hafa áhrif á 3.500 börn

Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að verkfallið muni að óbreyttu hafa áhrif á rúmlega helming leikskólabarna í borginni eða um 3.500 börn.

Verkfallið hefur einnig áhrif á 1.650 notendur velferðarþjónustu borgarinnar auk þess sem sorphirða frestast í þeim hverfum þar sem tæming á að fara fram samkvæmt sorphirðudagatali.

„Mest verða áhrif verkfallsaðgerða Eflingarfólks á leikskólana auk matarþjónustu í grunnskólum. Þau börn sem fá vistun í leikskólum verður skipt upp í hópa, einn fyrir hádegi og annar eftir hádegi. Fyrirséð er að matarþjónusta í einhverjum grunnskólum borgarinnar raskast og þurfa nemendur þar að koma með nesti í skólann,“ segir í tilkynningu borgarinnar.


Tengdar fréttir

Deildu um höfrungahlaup á vinnumarkaði

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, og Konráð S. Guðjónsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs Íslands, ræddu kjarabaráttu félagsmanna Eflingar sem starfa hjá Reykjavíkurborg í Víglínunni.

Miklar líkur á nærri þriggja daga verkfalli

Miklar líkur eru á að tæplega þriggja daga verkfall Eflingar hefjist á þriðjudag. Ekkert hefur miðað í kjaraviðræðum Eflingar og borgarinnar. Borgarstjóri segist ekki hafa eins miklar áhyggjur af neinum kjarasamningum og samningnum við Eflingu, enda erfitt að verða við ýtrustu kröfum félagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×