Heiðar Sveinsson, framkvæmdastjóri Hyundai á Íslandi gerir ráð fyrir aukningu á sölu frá síðasta ári og segir að starfsfólk Hyundai fari bjartsýnt inn í árið. Þá eru margar nýjungar væntanlegar sem tengjast aukinni rafvæðingu.
„Okkar spá fyrir árið er ekki langt undan BGS spánni, aðeins aukning í bílaleigum og svipuð staða á einstaklinga og fyrirtækjamarkaði. Við spáum einhverri aukningu frá 2019. Við hjá Hyundai förum nokkuð bjartir inní árið. Höfum styrkt okkur á einstaklingsmarkaði undanfarin ár og vöruúrvalið er einnig að aukast í vistvænum bílum,“ sagði Heiðar í samtali við Vísi.

Margar nýjungar tengjast rafmagni
Hyundai kynnir á nýju ári Hybrid lausnir í nokkrum útgáfum. Þar ber hæst að nefna: Tucson Dísel í hybrid útgáfu. Hann verður með 1,6 díselvél og 48V mild hybrid útbúnað sem eykur afl og tog við erfiðar aðstæður ásamt því að minnka útblástur og eyðslu. Mild hybrid hleður rafhlöðu eingöngu við hemlun og viðhaldi niður brekkur. Hann verður í boði 4wd og sjálfskiptur í 3 búnaðarútfærslum. Kynntur á næstu vikum.
Þá kemur á vordögum, Kona bensín Hybrid með 1,6 bensínvél og hefðbundnu hybrid kerfi sem hleður líka með bensínmótornum við réttar aðstæður og getur ekið styttri vegalengdir á rafmagni.
Santa fe fær uppfærslu á haustmánðum og gæti náð hingað fyrir árslok í Plug-in Hybrid útfærslu PHEV.
Nýjingar í fólksbílum
Hyundai i30 kemur nýr í sumar, verður í boði með 48V mild hybrid lausn, verður bæði til sjálfskiptur og beinskiptur.
Hyundai i20 kemur einnig nýr í sumar mikið breyttur, i20 hefur notið mikilla vinsælda á markaðnum. Hann verður í boði mild hybrid með bensínvél.
Hyundai IONIQ sem hefur verið í boði bæði rafmagn og Plug-in Hybrid kemur nýr næstu mánuði með 311 km drægni og 39kW rafhlöðu, nýtt útlit og uppfærðan búnað.
Hyundai KONA EV einn vinsælasti rafbíllinn
„Við erum að styrkja stöðu okkar í rafbílum og tengi bílum í ár. Hyundai Kona sem hefur verið aðaldrifkrafturinn hjá okkur hefur fram að þessu eingöngu verið í boði með 64 kW rafhlöðu og 449 km drægni verður nú í boði líka með 39 kW rafhlöðu og um 289 km drægni og í ódýrari útgáfu sem ætti að henta vel fyrir fyrirtæki og þá sem aka styttir leiðir,“ bætir Heiðar við.

Alveg nýr Hyundai i10
Hyundai i10 hefur verið einn vinsælasti bíllinn í A flokki á landinu og hann kemur nýr í vetur, mjög góð breyting með vistvænni sjálfskiptingu og nýju fersku útliti.
Framtíðin
Það er ekki mín sýn að við munum öll keyra á sjálfkeyrandi bílum alveg á næstunni, engu að síður er að aukast í bílum virkt öryggi sem byggir á 360° myndavélatækni og styður okkur í umferðinni með allskonar viðvörunum og jafnvel grípur inní ef óvarlega er að farið. Nægir þar að nefna búnað eins og sjálfvirka árekstarvörn, blindhornsviðvörun, akgreinarvarar og fleira í þeim dúr.