Aðalfundur SVFR og kosning til stjórnar Karl Lúðvíksson skrifar 24. febrúar 2020 08:45
Aðalfundur Stangaveiðifélags Reykjavíkur fer fram næsta miðvikudag kl 17:30 í Akóges salnum Lágmúla 4 3. hæð en þá fer einnig fram kosning til stjórnar. Á fundinum fara fram hefðbundin aðalfundarstörf ásamt kosningum til stjórnar og fulltrúaráðs. Formaðurinn er sjálfkjörinn en kosið verður um sæti þriggja stjórnarmanna til tveggja ára. Fimm félagsmenn í fulltrúaráð eru sjálfkjörnir. Starfsfólk og stjórn SVFR hvetja félagsmenn til að fjölmenna á fundinn en rétt til setu á fundinum hafa allir félagsmenn sem eru skuldlausir við félagið. Atkvæðisrétt hafa einungis félagsmenn sem eru 18 ára og eldri. Opnað verður fyrir utankjörfundaratkvæði miðvikudaginn 19. febrúar nk. á skrifstofu félagsins. Kjörfundur er frá kl. 11.00 – 16:00 hvern dag. Frestur til að skila inn untankjörfundaratkvæði er til lokun skrifstofu 25. febrúar kl. 16:00. Þessi framboð bárust og hvetjum við félagsmenn til að kynna sér frambjóðendur. Frekari kynningu frabjóðenda sem hafa sent inn slíka kynningu er hægt að sjá með því að smella á viðeigandi hnapp hér að neðan. Framboð til formannsJón Þór Ólason Framboð í stjórnHalldór Jörgensson Hrannar Pétursson Rögnvaldur Örn Jónsson Trausti Hafliðason Framboð í fulltrúaráðGylfi Gautur Pétursson Jóhann Steinsson Jónas Jónasson Ólafur E. Jóhannsson Reynir Þrastarson Nánari kynning á frambjóðendum til stjórnar er að finna á www.svfr.is
Stangveiði Mest lesið Ytri Rangárnar bæta við sig Veiði Besti tíminn laus í Soginu Veiði Þverá og Kjarrá opna með ágætum Veiði Lækka um fjórðung í Andakíl Veiði Veiðimönnum boðið í Hlíðarvatn Veiði Vefsalan hjá Lax-Á að fara í gang Veiði Jólagleði SVFR verður haldin á föstudagskvöld Veiði Elliðaárnar undir meðaltali síðustu ára Veiði Elliðavatn opnar á fimmtudag Veiði 74 birtingar á land á þremur dögum Veiði