Veiðisvæðakynning hjá Fish Partner Karl Lúðvíksson skrifar 27. maí 2020 08:03 Mynd: www.fishpartner.is
Fish Partner hefur all mörg skemmtileg veiðisvæði á sínum snærum en þar á meðal veiðisvæði við Þingvallavatn og Úlfljótsvatn sem hafa notið vinsælda. Kristjáns Páls Rafnssonar hjá Fish Partner verður með kynninguá svæðum félagsins við Þingvallavatn og Úlfljótsvatn næsta laugardag þann 30. maí en farið verður ítarlega í tækni, staðhætti og nokkrir leynistaðir afhjúpaðir. Kristján ætlar að miðla áratuga reinslu sinni við vatnið til allra sem hafa áhuga á vatnakerfinu. Kynningin verður laugardaginn 30 Maí á eftirfarandi svæðum í Þingvallavatni og Úlfljótsvatni. Það verða 2 kynningar þennan dag. Önnur klukkan 10:00 og hin kl.15:00. Þeir sem hafa áhuga á að mæta hittast á bílastæðinu við Þrastalund á settum tímum og fara í kring um vötnin. Svæðin sem verða skoðuð eru, Villingavatn, Svörtuklettar, Kárastaðir, Kaldárhöfði og Efri Brú. Síðan endum við í Veiðihúsinu við Efri Brú þar sem verður farið yfir málin og grillaðar pylsur. Áhugasamir geta skráð sig HÉR.
Mest lesið Laxveiðileyfi undir 20 þúsund krónum Veiði Góð rjúpnaveiði um allt land í gær Veiði Tók fyrsta laxinn sinn í Elliðaánum Veiði Zeldan er einföld en gjöful fluga Veiði Mús í Urriðamaga Veiði 100 sentímetra lax í Selá; Góð opnun í Hofsá Veiði Núna er tíminn til að fara á kastnámskeið Veiði Aukin veiði fjölgar refum Veiði Ekki rætt um annað útboð Veiði Spá að Miðfjarðará fari yfir 4.000 laxa Veiði