Sjö flutt með þyrlu til Reykjavíkur eftir slys á Suðurlandi Vésteinn Örn Pétursson skrifar 29. ágúst 2020 19:41 Af vettvangi í kvöld. Mynd/Lögreglan á Suðurlandi
Lögregla og aðrir viðbragðsaðilar eru nú við störf á vettvangi umferðarslyss við Skaftafell. Smárúta með sjö manns innanborðs fór út af veginum og valt. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu. Í tilkynningunni segir að ökumaður og farþegar séu allir með meðvitund, en einhverjir hafi beinbrotnað þegar bifreiðin fór út af veginum. Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar hafa verið kallaðar út. Samkvæmt upplýsingum frá Almannavörnum voru öll sjö sem voru í bílnum flutt með þyrlum til aðhlynningar á Landspítalanum. „Búið er að afturkalla björgunarsveitir í Árnes og Rangárvallasýslu enda talið að bjargir á svæðinu auk sjúkraflutninga sem er á leið á vettvang ráði vel við verkefnið. Opið er fyrir umferð um vettvang en búast má við að tafir verði og jafnvel tímabundnar lokanir fram eftir kvöldi,“ segir í tilkynningu lögreglunnar. Samkvæmt upplýsingum frá Almannavörnum hefur hópslysaáætlun verið virkjuð á Suðurlandi. Aðgerðarstjórn hefur þá verið virkjuð á Selfossi og samhæfingarstöð í Skógarhlíð í Reykjavík. Fjöldahjálparstöð hefur verið opnuð á Höfn og verður opnuð í hjá RKÍ í Efstaleiti fyrir aðstandendur hinna slösuðu. Fréttin var síðast uppfærð klukkan 22:22
Samgönguslys Björgunarsveitir Landhelgisgæslan Skaftárhreppur Mest lesið Skip úr skuggaflotanum hægði grunsamlega mikið á sér Erlent Áfengissala á helgidögum þjóðkirkjunnar stöðvuð af lögreglu Innlent Komu hesti til bjargar úr gjótu Innlent Margt bendi til að Rússar hafi haft aðkomu að flugslysinu Erlent Icelandair skoðar næstu skref í þróun flugflotans Innlent Slóvakar vilja hýsa friðarviðræður Rússlands og Úkraínu Erlent Gamla ríkið falt og milljónir fylgja Innlent Týndu vagni með jólamáltíðum sjúklinga á bráðamóttökunni Innlent Rúta rann yfir rangan vegarhelming út í móa Innlent Þau kvöddu á árinu 2024 Erlent Fleiri fréttir Komu hesti til bjargar úr gjótu Icelandair skoðar næstu skref í þróun flugflotans Áfram töluverð snjóflóðahætta á Vestfjörðum Áfengissala á helgidögum þjóðkirkjunnar stöðvuð af lögreglu Snjóflóðahætta á Vestfjörðum og frumsýning Yermu Holtavörðuheiðinni lokað aftur í kvöld Sex voru fluttir með þyrlunni Gamla ríkið falt og milljónir fylgja Telja skemmdir í Bláfjöllum minniháttar Súðavíkurhlíð opin til 16 Alvarlegt bílslys í Öræfum Rólegt á aðfangadag en mikil aðsókn í viðtalstíma í desember Snjóflóð féllu á Súðavíkurhlíð Rúta rann yfir rangan vegarhelming út í móa Týndu vagni með jólamáltíðum sjúklinga á bráðamóttökunni Snjóflóð féll á Súðavíkurhlíð og rólegt í Kvennaathvarfinu Skógaskóli verður hótel Grímuskylda á Landspítalanum Búið að opna Hellisheiði og Holtavörðuheiði Strætó rann á bíl og ruslaskýli Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Jólakindin Djásn á Stokkseyri Standa vaktina á jóladag: „Þetta er bara eins og hina dagana“ Standa vaktina við lokunarpósta á jóladag Flugferðir hafnar að nýju í Keflavík Þak fauk nánast af hlöðu Fagna jólunum í Betlehem í skugga stríðs Hellisheiði og Þrengsli opna ekki fyrr en á morgun Aðeins ein flugvél lent í Keflavík í dag Útköll víða vegna óveðurs Sjá meira