Innlent

Bein út­sending: Fyrstu ó­undir­búnu fyrir­spurnirnar á fundi borgar­stjórnar

Atli Ísleifsson skrifar
Frá fundi borgarstjórnar Reykjavíkur.
Frá fundi borgarstjórnar Reykjavíkur. Vísir/Vilhelm

Fundur í borgarstjórn Reykjavíkurborgar hefst klukkan 14 þar sem í fyrsta sinn verða óundirbúnar fyrirspurnir á dagskrá.

Um tilraunaverkefni er að ræða þar sem liðurinn verður á dagskrá í upphafi sex borgarstjórnarfunda fram til áramóta.

Pawel Bartozek, forseti borgarstjórnar, hefur sagt að litið hafi verið til þingsins, þar sem óundirbúnar fyrirspurnir sé sá dagskrárliður í þinginu sem hafi vakið „smá athygli“. Vonaðist hann til að með þessu verði hægt að fá skörp skoðanaskipti eða þá upplýsingagjöf fyrir fundinn.

Hægt er að fylgjast með fyrirspurnatímanum í spilaranum að neðan.

Á heimasíðu Reykjavíkur má sjá dagskrá fundarins sem hefst nú klukkan 14. Þar segir að allir flokkar í minnihluta muni beina spurningum til Dags B. Eggertssonar, en að meirihlutinn muni í sameiningu beina fyrirspurn til Eyþórs Arnalds, oddvita Sjálfstæðismanna í borginni, um eftirlitsmyndavélar.

  • Fyrirspurn til borgarstjóra um samgöngusáttmála – Sjálfstæðisflokkur
  • Fyrirspurn til Eyþórs Laxdal Arnalds borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um eftirlitsmyndavélar - Samfylking, Viðreisn, Píratar og Vinstri græn
  • Fyrirspurn til borgarstjóra um biðlista eftir félagslegu húsnæði – Sósíalistaflokkur Íslands
  • Fyrirspurn til borgarstjóra um Reykjavíkurflugvöll – Miðflokkur
  • Fyrirspurn til borgarstjóra um skólamál og/eða velferðarmál – Flokkur fólksins



Fleiri fréttir

Sjá meira


×