Vill ekki sjá Messi í ensku úrvalsdeildinni Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. september 2020 08:30 Andy Robertson segir að Lionel Messi sé besti leikmaður hann hefur mætt. getty/Matthias Hangst
Fjölmargir fótboltaáhugamenn myndu fagna því að sjá Lionel Messi spila í ensku úrvalsdeildinni. Andy Robertson, leikmaður Englandsmeistara Liverpool, er ekki einn af þeim og vill ekki sjá Messi í enska boltanum. Messi vill fara frá Barcelona, félaginu sem hann hefur leikið með allan sinn feril, og m.a. verið orðaður við Manchester City. Robertson var spurður út í stöðu Messi á blaðamannafundi í gær. Skotinn viðurkenndi að hann myndi kjósa að Messi héldi kyrru fyrir hjá Barcelona. „Ég held að Liverpool hafi útilokað að fá hann svo ég vil ekki sjá hann nálægt ensku úrvalsdeildinni,“ sagði Robertson. „Ég hef mætt honum tvisvar og það voru erfiðustu leikir sem ég hef spilað á ferlinum.“ Leikirnir sem Robertson vísar til voru í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu á þarsíðasta tímabili. Messi skoraði tvö mörk í fyrri leiknum á Nývangi sem Börsungar unnu, 3-0. Liverpool sneri dæminu sér í vil í seinni leiknum á Anfield, vann ótrúlegan 4-0 sigur og tryggði sér sæti í úrslitaleiknum. Þar vann Liverpool Tottenham með tveimur mörkum gegn engu. Liverpool vann ensku úrvalsdeildina með miklum yfirburðum á síðasta tímabili en liðið fékk átján stigum meira en City sem endaði í 2. sæti.
Enski boltinn Mest lesið Æfur og krefst rannsóknar eftir „lélegan brandara“ Sport Tvöfalt sjokk fyrir Alfreð Handbolti Karlarnir fengu pening en konurnar sjampó, sápu og handklæði Sport Björgvin Karl hluti af nýrri atvinnumannadeild í CrossFit Sport Úkraínska landsliðið finnst hvergi Sport Missir af stórleiknum vegna innvortis blæðinga Fótbolti Handknattleiksambandið fær langmest úr Afrekssjóði ÍSÍ en KSÍ ekki neitt Sport Ballið byrjar hjá strákunum okkar Handbolti Conor McGregor og Logan Paul fá jafnmikið borgað fyrir bardagann Sport Mark ársins strax á fyrsta degi? Enski boltinn Fleiri fréttir Segir The Sun flytja falsfréttir: „Þetta er að verða algjört rugl“ Hafa aldrei tapað þegar Jesus skorar Fyrrum landsliðsþjálfarinn aðlaður af konungi Mark ársins strax á fyrsta degi? „Ekki auðvelt að spila fyrir stórt félag eins og Arsenal“ Hákon Rafn á bekknum þegar Skytturnar skutust í annað sætið Willum Þór lagði upp þegar Birmingham tapaði stigum Fjölmargir leikmenn orðaðir við Arsenal Þessir mega byrja að ræða við önnur félög Carragher skammar Alexander-Arnold Mætir Arsenal næst og kallar eftir skýrum reglum í hornspyrnum Vatnsbrúsaspark gæti leitt til lengra banns Antonio útskrifaður eftir rúmlega þriggja vikna spítaladvöl Dæmdur í tveggja leikja bann fyrir að ýta öryggisverði „Við erum ekki að einbeita okkur að titilbaráttu“ Rooney hættur að þjálfa Guðlaug Victor Viðurkennir að Man. Utd sogist í fallbaráttu: „Mjög erfiðir tímar“ Newcastle bætti við martröð Man. Utd Skelltu Chelsea í þriðja sigri sínum á leiktíðinni Dómarar tilkynna áhorfendum ákvörðun sína Rashford laus úr útlegð Yfirgnæfandi líkur á að Liverpool verði Englandsmeistari Skoraði í ensku og dreif sig síðan í Ally Pally Í stormi innan vallar en vann góðverk utan hans Veltir því fyrir sér hvort nýja Liverpool þríeykið sé betra Cristiano Ronaldo: Ef ég ætti Man. United þá myndi ég leysa vandann Guardiola var á undan Haaland með stóru fréttirnar Ófarir Spurs halda áfram Enduðu árið með stæl Kærkominn sigur City Sjá meira