Bein útsending: Nýsköpunarvikan hefst í dag Nýsköpunarvika 30. september 2020 07:00 Gróska, heimili nýsköpunar í Vatnsmýri þar sem opnunarhóf Nýsköpunarvikunnar fer fram í dag. Nýsköpunarvikan hefst í dag og stendur til 7. október. Í stað þess að fresta hátíðinni í ljósi COVID-19 var tekin sú ákvörðun að beita skapandi hugsun og halda smærri viðburði í bland við rafræna viðburði. Með hátíðinni gefst frumkvöðlum og fyrirtækjum tækifæri til að kynna skapandi starfsemi sína og vekja athygli á þeim framúrstefnulegu lausnum sem sprottið hafa upp úr íslensku hugviti. Setning Nýsköpunarvikunnar verður haldin sem streymisviðburður frá Grósku, heimili nýsköpunar í Vatnsmýrinni í dag. Setningin hefst klukkan 15 og verður streymt live á visir.is í dag og á heimasíðu hátíðarinnar www.nyskopunarvikan.is. Á setningunni verður fjallað um nýsköpun þvert á atvinnugreinar en meðal þeirra sem taka til máls verða Guðni Th. Jóhannesson, Forseti Íslands og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Markmið Nýsköpunarvikunnar er þríþætt. Í fyrsta lagi að vekja athygli á nýsköpun sem á sér stað innan stærri fyrirtækja hér á landi og draga fram sérstöðu þeirra. Þá er ætlunin að koma á samtali milli frumkvöðla, sprotafyrirtækja og almennings og veita innsýn í sköpunarferlið sem liggur að baki ólíkum fyrirtækjum. Loks er stefnt að því að Nýsköpunarvikan skapi sér sess til framtíðar sem vettvangur fyrir erlenda aðila sem vilja kynnast nýsköpun á Íslandi, tengjast sprotum, fjárfestum og frumkvöðlum og mynda ný viðskiptasambönd og tengsl. Þannig verði hátíðin sambærileg öðrum tækni- og sprotaráðstefnum á Norðurlöndum. „Í árferði sem þessu er mikilvægt að ýta undir nýsköpun, því með skapandi hugsun getum við lyft okkur hraðar upp úr þeirri efnahagslegu dæld sem við erum nú í vegna COVID-19. Við erum afar ánægð með móttökurnar sem Nýsköpunarvikan hefur fengið meðal fyrirtækja í geiranum, sem sjást hvað skýrast í því hversu fjölbreytta og marga samstarfsaðila við fengum með okkur,“ segir Edda Konráðsdóttir, ein af skipuleggjendum vikunnar. Viðburðir vikunnar eru jafn fjölbreyttir og þeir eru margir, og má þar nefna heilsu- og fjártækni hakkaþon, fyrirlestra um tengsl sjálfbærni og ferðaþjónustu framtíðarinnar og stafrænan rekstur í deilihagkerfinu, auk þess sem fjöldi nýsköpunarfyrirtækja, gamalgróinna jafnt sem nýsprottinna, munu kynna starfsemi sína. Viðburðadagatal Nýsköpunarvikunnar er hægt að nálgast á vefsvæði hátíðarinnar, www.nyskopunarvikan.is, en frítt er inn á alla viðburðina. Nýsköpun Viðskipti Lífið Mest lesið Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent Ástandið minni á 2007 Neytendur Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Viðskipti innlent Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Neytendur Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Viðskipti innlent Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent María Klara til Athygli Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tryggðu þér betri sýnileika í gervigreindarleit og hefðbundinni leit Sex lausnir sem geta lokað stærstu öryggisgötum fyrirtækisins Drægnitölurnar komu út í plús Greiðsluáskorun Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Bylgjan slær enn met í hlustun Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Sjá meira
Viðburðadagatal Nýsköpunarvikunnar er hægt að nálgast á vefsvæði hátíðarinnar, www.nyskopunarvikan.is, en frítt er inn á alla viðburðina.
Nýsköpun Viðskipti Lífið Mest lesið Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent Ástandið minni á 2007 Neytendur Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Viðskipti innlent Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Neytendur Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Viðskipti innlent Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent María Klara til Athygli Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tryggðu þér betri sýnileika í gervigreindarleit og hefðbundinni leit Sex lausnir sem geta lokað stærstu öryggisgötum fyrirtækisins Drægnitölurnar komu út í plús Greiðsluáskorun Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Bylgjan slær enn met í hlustun Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Sjá meira