Suðaustan kaldi með rigningu og slyddu sunnan og vestantil Atli Ísleifsson skrifar 21. október 2020 07:16 Kröpp og djúp lægð frá Nýfundnalandi nálgast landið á morgun. Vísir/vilhelm
Suðaustan kaldi með smá rigningu eða slyddu gengur yfir landið sunnan- og vestanvert í dag. Mun hægara og bjartviðri verður hins vegar norðaustan til. Í hugleiðingum veðurfræðings segir að á morgun nálgist kröpp og djúp lægð frá Nýfundnalandi. Hvessi þá úr austri og verði hvassast við suðurströndina, jafn vel staðbundinn stormur um kvöldið. „Lítilsháttar væta víða um land, en þurrt að kalla fyrir norðan. Áframhaldandi hvassir vindar og úrkomusamt fram á sunnudag, þegar lægir loks og rofar til, en fremur hlýtt miðað við árstíma. Þeir sem hyggja á ferðalög næstu daga ættu að fylgjast vel með veðurspám og færð.“ Spákort Veðurstofunnar fyrir hádegið eins og það leit út í morgun.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Gengur austan 13-20 m/s með rigningu á S-verðu landinu, hvassast syðst og jafn vel stormur þar um kvöldið. Hiti 1 til 6 stig. Hægara og þurrt fyrir norðan og hiti kringum frostmark. Á föstudag: Norðaustan 13-20 m/s, hvassast á Vestfjörðum með talsverðri rigningu S- og A-lands, en annars úrkomuminna. Hiti 1 til 7 stig, mildast syðst. Á laugardag (fyrsti vetrardagur): Útlit fyrir norðaustanhvassviðri, jafn vel storm með talsverðri rigningu á A-helming landsins, en annars úrkomuminna og milt í veðri. Á sunnudag: Stíf norðaustanátt NV-til, en annars mun hægari vindar. Væta í flestum landshlutum og fremur hlýtt í veðri. Á mánudag: Líklega hæg norðanátt með skúrum éljum, en úrkomulítið syðra og fremur svalt veður. Á þriðjudag: Líkur á vaxandi austanátt með rigningu og hlýnandi veðri.
Veður Mest lesið Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Innlent „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Innlent „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Innlent Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Innlent Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Innlent Líkurnar á lækkun „mjög litlar“ Innlent „Á yfir höfði sér kærur vegna fjölda umferðarlagabrota“ Innlent Listamenn safna fyrir 10 ára dreng á Selfossi í dag Innlent Dómari krefst þess að Liam og föður hans verði sleppt úr haldi Erlent Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Innlent Fleiri fréttir Má búast við skúrum eða éljum Víðast úrkomulítið en skúrir og slydduél austantil Mildri austanátt beint til landsins Áfram hvasst með suðurströndinni Slær áfram í storm á suðurströndinni Djúp lægð veldur stormi syðst á landinu Þurrt og bjart víða um landið Hvasst syðst á landinu Kólnandi veður og víða bjart Ákveðin austanátt á landinu öllu og víða snarpar hviður Víða rigning með köflum og bætir í vind í kvöld Róleg austanátt en hvessir á morgun Víða rigning og kólnar í veðri Minnkandi norðlæg átt en bætir í vind á morgun Þurrt og bjart suðvestantil en snjór og él víða Líkur á smá slyddu og snjókomu syðst Stíf norðvestlæg átt ásamt ofankomu Gæti slegið í storm og hringvegurinn lokaður Óvissustig á vegi milli Kirkjubæjarklausturs og Jökulsárlóns Gular veðurviðvaranir framundan Útlit fyrir hríðarveður á austasta hluta landsins í kvöld Frost og hægur vindur Norðaustlæg átt og allvíða él Veginum lokað við Skaftafell og fólk leitar í fjöldahjálparstöð Vara við eldingum á Suðausturlandi Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar Áfram kalt á landinu Óvenjulega hlýr desember Áfram kalt og lægðir sækja að landinu Hægir vindar og snjókoma norðan- og austantil Sjá meira