Nítján greindust með veiruna innanlands í gær Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 6. nóvember 2020 10:50 Myndin er tekin í gær á nýrri Covid-19-göngudeild á hjúkrunarheimilinu Eir en deildin er hugsuð fyrir íbúa hjúkrunarheimila sem smitast af kórónuveirunni en þurfa ekki á innlögn á sjúkrahús. Vísir/Vilhelm
Nítján manns greindust með kórónuveiruna innanlands í gær samkvæmt uppfærðum tölum á covid.is. Ekki hafa færri greinst smitaðir innanlands síðan 16. september, þegar þeir voru einnig nítján talsins. Tólf þeirra sem greindust í gær voru í sóttkví við greiningu eða 63% og sjö voru utan sóttkvíar. Alls er nú 735 manns í einangrun hér á landi og 1.414 í sóttkví. 78 manns liggja á sjúkrahúsi vegna Covid-19 en þar af eru fjórir á gjörgæslu. Sjö greindust á landamærunum; þrír greindust með virk smit í seinni landamæraskimun og beðið er niðurstöðu mótefnamælingar hjá fjórum öðrum. Alls voru tekin 1.063 einkennasýni og 233 sýni í sóttkvíar- og handahófsskimunum. 485 sýni voru tekin í landamæraskimun. Nýgengi innanlandssmita er 177,8 og nýgengi landamærasmita 18. Alls hafa nú 5.039 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá upphafi faraldursins í lok febrúar. Átján manns hafa látist vegna Covid-19; tíu manns í fyrstu bylgjunni og átta í þeirri bylgju sem nú gengur yfir. Tæp vika er nú síðan hörðustu sóttvarnaaðgerðir sem gripið hefur verið til hingað til í faraldrinum tóku gildi. Síðan þá hafa innan við þrjátíu smit greinst dag og eins og áður segir voru þeir innan við tuttugu í gær. Fréttin hefur verið uppfærð.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Alvöru inniveður um helgina Innlent Segir Kúbu brátt munu falla Erlent Segir hvorki Jesú, Múhameð né Þór hafna yfir lög Innlent Þurfi ekki að óttast bílnúmeralesara við Sorpu Innlent Gul viðvörun og enn líkur á eldingum Veður Segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf Íran draum Erlent Vatnselgur undir brúnni í Ártúnsbrekku Innlent Hvalfjarðargöng lokuð Innlent Tveir grunaðir um stórfellda líkamsárás í miðbænum Innlent Listamönnum fækkar ört Innlent Fleiri fréttir Tveir grunaðir um stórfellda líkamsárás í miðbænum Segir hvorki Jesú, Múhameð né Þór hafna yfir lög Þurfi ekki að óttast bílnúmeralesara við Sorpu Listamönnum fækkar ört Alvöru inniveður um helgina Kristinn hafði betur gegn Alexöndru og verður oddviti Pírata Selfosskirkja 70 ára og kirkjukórinn 80 ára Kjartan og Marta til liðs við Miðflokkinn Útiloka að þjóðaratkvæðagreiðslan fái hraða afgreiðslu Rætt við stjórnarandstöðuna um atkvæðagreiðslu um ESB Truflanir víða vegna eldingaveðurs Hvalfjarðargöng lokuð Vatnselgur undir brúnni í Ártúnsbrekku Ríkisstjórnin feli aðgerðaleysi á bak við atkvæðagreiðsluna Enn frekari dráttur á máli Margrétar „Verið að vaða áfram með æðibunugangi“ Rafmagnslaust vegna eldingar Jakob Bjarnar, Kjartan og Sunna tilnefnd til blaðamannaverðlauna Bráðabirgðaráðstafnir í Reynisfjöru: Nýr útsýnispallur rís í vor Mál Margrétar flutt á ný vegna dráttar Bjarki lætur staðar numið í Dalabyggð Ísland sé í sterkari stöðu en áður fyrir aðildarviðræður Alvarlegt umferðarslys við Munaðarnes Bein útsending: Staða loftlagsrannsókna á Íslandi Þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram 29. ágúst Kynna þjóðaratkvæði um framhald viðræðna Bein útsending: Kynna tillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu Methiti í hafinu við Ísland vísbending um stærri breytingar Kynna tillöguna um þjóðaratkvæðagreiðsluna klukkan 11:30 „Brýn nauðsyn“ geti kallað á rof þagnarskyldu heilbrigðisstarfsfólks Sjá meira