Veður

Suðlæg átt og víða él

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Það verður heldur kalt víða um land í dag eins og sést á þessu spákorti Veðurstofunnar sem gildir fyrir klukkan 12 í dag.
Það verður heldur kalt víða um land í dag eins og sést á þessu spákorti Veðurstofunnar sem gildir fyrir klukkan 12 í dag. Veðurstofa Íslands

Því er spáð að það dragi úr vindi og ofankomu á norðaustanverðu landinu með morgninum. Þá verður suðlæg átt, víða fimm til tíu metrar á sekúndu og él en það á að rofa til á Norðurlandi.

Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Þar segir jafnframt að hiti verði núll til fimm stig að deginum en í kringum frostmark fyrir norðan.

Á morgun er síðan spáð allhvassri eða hvassri austanátt og rigningu með köflum. Um tíma má búast við talsverðri rigningu á Suðausturlandi og Austfjörðum en hægari vindur og þurrt um landið norðanvert fram eftir degi.

Það lægir annað kvöld og dregur úr úrkomu sunnanlands. Þá hlýnar heldur, spáð er tveggja til átta stiga hita síðdegis.

Veðurhorfur á landinu:

Vestan 10-18 m/s og slydda eða snjókoma um landið NA-vert, en lægir og styttir upp með morgninum. Suðlæg átt 5-10 og él í dag, en rofar til N-lands. Hiti 0 til 5 stig að deginum, en í kringum frostmark fyrir norðan.

Austan 13-20 og rigning með köflum á morgun, og talsverð rigning SA-til, en hægari og þurrt um landið N-vert fram eftir degi. Lægir víða annað kvöld og dregur úr úrkomu S-lands. Hlýnandi, hiti 2 til 8 stig síðdegis.

Á fimmtudag:

Austan 13-20 m/s og rigning, og talsverð rigning SA-til, en hægari og þurrt um landið N-vert framan af degi. Lægir víða um kvöldið og dregur úr úrkomu S-lands. Hiti 1 til 7 stig að deginum, mildast syðst.

Á föstudag:

Norðan og norðaustan 5-13 m/s. Dálitlar skúrir eða él N-til, og rigning SA- og A-lands, annars þurrt að kalla. Hiti 0 til 6 stig.

Á laugardag:

Fremur hæg austlæg eða breytileg átt og skýjað með köflum, en dálítil él við N-ströndina. Hiti 0 til 5 stig, en vægt frost inn til landsins.

Á sunnudag:

Norðaustlæg eða breytileg átt og slydda eða snjókoma A-lands, annars úrkomulítið. Hiti um og undir frostmarki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×