Salah búinn að ná Cristiano Ronaldo Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. desember 2020 14:01 Mohamed Salah heilsar Cristiano Ronaldo fyrir úrslitaleik Meistaradeildarinnar þegar Ronaldo lék enn með Real Madrid. Getty/Matthew Ashton Mohamed Salah skoraði fyrsta mark Liverpool í 4-0 sigrinum á Úlfunum í ensku úrvalsdeildinni í gær og er þar með búinn að skora 84 mörk í ensku úrvalsdeildinni. Mohamed Salah er nú búinn að skora jafnmörg mörk og Cristiano Ronaldo gerði fyrir Manchester United á sínum tíma. Salah skoraði 84. markið í gær í sínum 131. leik en hann var 65 leikjum á undan Ronaldo að skora sín 84 mörk. Cristiano Ronaldo lék 196 deildarleiki fyrir Manchester United á árunum 2003 til 2009. Mohamed Salah has as many PL goals as Cristiano Ronaldo in 65 fewer games pic.twitter.com/RgKePeCMQp— ESPN FC (@ESPNFC) December 6, 2020 Salah kom til Liverpool frá Roma sumarið 2017 og hefur síðan tvisvar fengið gullskóinn sem markakóngur ensku úrvalsdeildarinnar (2017/18 og 2018/19). Salah hafði áður skoraði 2 mörk í 13 deildarleikjum með Chelsea frá 2013 til 2014. Mo Salah lagði einnig upp mark Joel Matip í leiknum á móti Úlfunum og er því einnig kominn með 31 stoðsendingu í ensku úrvalsdeildinni. Salah hefur því komið með beinum hætti að 115 mörkum í deildinni. Salah nálgast nú einnig Afríkumet Didier Drogba. Drogba er sá afríski knattspyrnumaður sem hefur skorað mest í ensku úrvalsdeildinni eða alls 104 mörk. Það met fellur þó örugglega aldrei fyrr en á næsta tímabili í fyrsta lagi.
Mohamed Salah er nú búinn að skora jafnmörg mörk og Cristiano Ronaldo gerði fyrir Manchester United á sínum tíma. Salah skoraði 84. markið í gær í sínum 131. leik en hann var 65 leikjum á undan Ronaldo að skora sín 84 mörk. Cristiano Ronaldo lék 196 deildarleiki fyrir Manchester United á árunum 2003 til 2009. Mohamed Salah has as many PL goals as Cristiano Ronaldo in 65 fewer games pic.twitter.com/RgKePeCMQp— ESPN FC (@ESPNFC) December 6, 2020 Salah kom til Liverpool frá Roma sumarið 2017 og hefur síðan tvisvar fengið gullskóinn sem markakóngur ensku úrvalsdeildarinnar (2017/18 og 2018/19). Salah hafði áður skoraði 2 mörk í 13 deildarleikjum með Chelsea frá 2013 til 2014. Mo Salah lagði einnig upp mark Joel Matip í leiknum á móti Úlfunum og er því einnig kominn með 31 stoðsendingu í ensku úrvalsdeildinni. Salah hefur því komið með beinum hætti að 115 mörkum í deildinni. Salah nálgast nú einnig Afríkumet Didier Drogba. Drogba er sá afríski knattspyrnumaður sem hefur skorað mest í ensku úrvalsdeildinni eða alls 104 mörk. Það met fellur þó örugglega aldrei fyrr en á næsta tímabili í fyrsta lagi. 84 mörk Mohamed Salah í ensku úrvalsdeildinni 69 með vinstri fæti 11 með hægri fæti 4 með skalla 11 úr vítaspyrnum 0 úr aukaspyrnum 0,64 mörk í leik 31 stoðsending 84 mörk Cristiano Ronaldo í ensku úrvalsdeildinni 9 með vinstri fæti 47 með hægri fæti 9 með skalla 11 úr vítaspyrnum 9 úr aukaspyrnum 0,43 mörk í leik 34 stoðsendingar
84 mörk Mohamed Salah í ensku úrvalsdeildinni 69 með vinstri fæti 11 með hægri fæti 4 með skalla 11 úr vítaspyrnum 0 úr aukaspyrnum 0,64 mörk í leik 31 stoðsending 84 mörk Cristiano Ronaldo í ensku úrvalsdeildinni 9 með vinstri fæti 47 með hægri fæti 9 með skalla 11 úr vítaspyrnum 9 úr aukaspyrnum 0,43 mörk í leik 34 stoðsendingar
Enski boltinn Mest lesið Åge Hareide látinn Fótbolti Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Handbolti Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Handbolti Strasbourg - Breiðablik 3-1 | Hetjuleg barátta dugði skammt Fótbolti Snorri kynnti EM-strákana okkar Handbolti „Eitt ótrúlegasta augnablik sem þú sérð í hvaða íþrótt sem er“ Sport Teitur fer á EM sem hornamaður í stað Sigvalda Handbolti Uppgjörið: Keflavík - Njarðvík 93-83 | Enn taplausir í Sláturhúsinu Körfubolti Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Enski boltinn ÍR - Valur 82-85 | Baráttusigur í Breiðholti Körfubolti Fleiri fréttir Amorim vill Neves Benti á hinn íslenska Dan Burn Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Forsætisráðherrann hótar Roman Abramovich og segir að „klukkan tifi“ „Sýnum kvennaíþróttir af því að þær eru frábærar“ Snéri aftur í fótbolta eftir 35 ára hlé: „Kalla mig Jackie Grealish“ Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Ungstirnið skallaði meistarana áfram Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram City sagt ætla að keppa við Liverpool og United um Semenyo Man United ósátt við Marokkó og FIFA Sápan trolluð: „Þetta er þessi klikkhaus með röddina“ Stjarnan fór í dulargervi: Setti stuðningsmann United á óþekka listann Garnacho skaut Chelsea áfram í undanúrslit Vísa á bug fullyrðingum Bruno sem hafa valdið fjaðrafoki Hlaut 21 árs dóm fyrir að aka inn í skrúðgönguna í Liverpool Bjarni segir Newcastle stærra félag en Tottenham Moyes ældi alla leiðina til Eyja Bróðirinn sendir Amorim skilaboð: „Frelsið Kobbie Mainoo“ „Besta frammistaða United undir stjórn Amorim“ Segir að Salah muni sjá eftir því að fara í janúar Sjáðu mörkin úr ótrúlegu átta marka jafntefli á Old Trafford Skemmtilegt fyrir fólkið heima og United verðskuldaði sigur Jafnt í ótrúlegum átta marka leik á Old Trafford Vildi ekki skýra ummælin um verstu 48 klukkutímana frekar Maresca hafi tekið blaðsíðu úr bók Salah og gert sér óleik Guardiola gagnrýndi Foden þrátt fyrir markið „Finnst þér ekki eins og hann sé þjakaður af pressu yfir því hvað hann sé lélegur?“ Fyrirliði Newcastle eftir tapið fyrir Sunderland: „Þetta er svo vandræðalegt“ Sjáðu klaufalegt sjálfsmark Woltemade í grannaslagnum og öll hin úr enska Sjá meira