Sport

„Mér líður eins og ofurkonu núna“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sara Curtis setti heimsmet tvö kvöld í röð á Evrópumeistaramótinu í sundi.
Sara Curtis setti heimsmet tvö kvöld í röð á Evrópumeistaramótinu í sundi. Getty/Andrea Staccioli

Sara Curtis er stærsta stjarna Evrópumeistaramótsins í sundi til þessa þegar hún setti tvívegis heimsmet á leiðinni til Evrópumeistaratitils í 50 metra baksundi.

Ástralska sundkonan Kaylee McKeown þurfti að horfa á eftir heimsmeti sínu í 50 metra baksundi á miðvikudagskvöld.

Á Evrópumeistaramótinu í París gjörsigraði ítalska sundkonan Sara Curtis keppinauta sína í undanúrslitum og kom í mark á tímanum 26,63 sekúndum.

Hún bætti þar með fyrra metið, sem var 26,86 sekúndur og sett af fimmföldum Ólympíugullhafa McKeown árið 2023, umtalsvert.

„Ég vissi að ég gæti þetta, en ég bjóst ekki við að það myndi gerast hér, á þessum tímapunkti, í þessu sundi. Mér líður eins og ofurkonu núna. Þetta er ótrúlegt og ég held að ég muni ekki sofa neitt í nótt, segir Sara Curtis við europeanaquatics.org.

Hin 19 ára Curtis hefur lengi verið talin ein af stærstu vonarstjörnum sundíþróttarinnar. Hún var heldur ekki hætt því kvöldið eftir tryggði hún sér Evrópugullið og sló aftur heimsmetið með því að synda 50 metrana á aðeins 26,56 sekúndum.

Hún hefur unnið til fjölda verðlauna á Evrópu- og heimsmeistaramótum unglinga og var þegar árið 2024 með í að vinna HM-gull í fullorðinsflokki sem hluti af ítalskri boðsundssveit.

Á síðasta ári sló hún svo í gegn persónulega á Evrópumeistaramótinu í 25 metra laug. Sjö verðlaun vann hún við það tækifæri. Frammistaðan hennar á þessu móti sýnir án vafa að ný stórstjarna er fædd.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×