Viðskipti innlent

Starfsfólk Landspítalans þarf að borga með jólagjöfinni sinni í ár

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, og Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra. Mikið hefur mætt á þeim á Covid-19 árinu sem 2020 hefur verið líkt og þúsundum starfsmanna Landspítalans.
Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, og Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra. Mikið hefur mætt á þeim á Covid-19 árinu sem 2020 hefur verið líkt og þúsundum starfsmanna Landspítalans. Vísir/Vilhelm

Um sex þúsund starfsmenn Landspítalans hafa fengið jólagjöf sína í hendur. Um er að ræða sjö þúsund króna gjafabréf í skóbúðina Skechers sem er að finna í Kringlunni og Smáralind. Auk þess fylgdi súkkulaði frá Omnom.

Fréttastofu hafa borist ábendingar frá bæði hjúkrunarfræðingum og læknum sem hrista hausinn yfir gjöfinni í ár. Sumir hafa látið óánægju sína í ljós á samfélagsmiðlum. Eins og þessi hjúkunarfræðingur.

Töluverð umræða hefur skapast um jólagjöfina í ár og sumir bent á að líklega dugi hún aðeins fyrir hálfu skópari í Skechers, það er að segja einum skó. 

Lausleg athugun fréttastofunnar leiddi þó í ljós að ódýrustu skórnir hjá Sketchers kosta 7038 krónur. Svo starfsmenn Landspítalans munu þurfa að strauja kortið sama hvaða skór verða fyrir valinu. Borga með gjöfinni. Gjafabréfið gildir í fjögur ár.

Reyndar er það svo að Vísis hefur heimildir fyrir því að fjölmargar deildir innan Landspítalans ræða hvað best sé að gera í stöðunni.

Ódýrustu skórnir í Skechers kosta með afslætti 7038 krónur. Gjafabréf starfsmanna Landspítalans dugar því næstum því, þó ekki alveg, fyrir ódýrustu skónum.Skechers

Vísir hefur heyrt af deildum þar sem til umræðu er að safna gjafabréfunum saman og gefa til góðs málefnis. Hefur Fjölskylduhjálp og Rauði krossinn verið nefnd í því samhengi. Tvö gjafabréf gætu hjálpað einstaklingum sem á þurfa að halda að kaupa sér góða skó.

Samskiptastjóri vill ekki eyðileggja eftirvæntinguna

Vísir sendi fyrirspurn á Stefán Hrafn Hagalín, deildarstjóra samkskiptadeildar Landspítala, og spurði út í gjöfina. Hann svaraði því til að gjafirnar væru alltaf mjög litlar því starfsmenn væru sex þúsund.

Starfsfólk Landspítalans hefur verið í eldlínunni á árinu.Vísir/Vilhelm

„Annað væri ugglaust litið hornauga,“ sagði Stefán Hrafn. Allir fengju sömu gjöfina en hann væri ekki meðvitaður um hver gjöfin væri í ár.

„Eyðileggjum varla eftirvæntingu starfsfólks með því að upplýsa það fyrirfram,“ sagði Stefán í svari sínu en vísaði að öðru leyti á Ástu Bjarnadóttur á skrifstofu mannauðsmála hjá Landspítalanum.

8500 krónur í Kokka í fyrra

Jólagjöf Landspítalans rataði líka í fréttirnar í fyrra. Þá fengu starfsmenn spítalans gjafabréf í Kokka á Laugavegi sem er búsáhaldaverslun á Laugavegi sem selur vöru í vandaðri kantinum. Gjafabréfið þá var upp á 8500 krónur.

Ásta sagði þá í samtali við DV að Landspítalinn leitaði árlega eftir tilboðum frá fyrirtækjum og aðilum varðandi jólagjafirnar. Það væri vinna sem færi í gang á sumrin.

„Ákvörðunin byggist síðan meðal annars á því hversu mikinn afslátt fyrirtækið er tilbúið að bjóða, og einnig er leitast við að hafa fjölbreytni á milli ára, þannig að allir starfsmenn geti fundið eitthvað við sitt hæfi. Slíkur afsláttur er ekki í boði ef keypt er almennt bankakort eða gjafakort sem gildir t.d. í allar verslanir í tiltekinni verslunarmiðstöð. Aðilar sem hafa áhuga á að taka þátt í þessu árlega verkefni okkar geta haft samband við skrifstofu mannauðsmála.“

Ásta Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri mannauðsmála á spítalanum, segir að jólagjöfin til starfsmanna í ár hafi kostað talsvert meira en undanfarin ár eða samanlegt um 36 milljónir króna.

Bjarni Ármannsson og Pétur Þór Halldórsson eiga 40 prósenta hlut hvor í S4S ehf sem sérhæfir sig í smásölu á skófatnaði í sérverslunum. Þar á meðal í Skechers, Ellingsen, Steinari Waage og fleiri verslunum.

Fréttin hefur verið uppfærð með upplýsingum um kostnað Landspítalans við gjafirnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×