Við eigum í stríði við veiru 20. mars 2020 12:42 António Guterres ræddi við fréttamenn með fjarfundabúnaði. UNRIC
António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hvatti í gær þjóðir heims til að sameinast í baráttunni gegn kórónaveirunni og COVID-19. „Heimur okkar stendur andspænis sameiginlegum óvini. Við erum í stríði við veiru,“ sagði aðalframkvæmdastjórinn á blaðamannafundi sem fram fór með fjarfundabúnaði frá höfuðstöðvum samtakanna í New York. Hann varaði við því að núverandi viðspyrna hvers lands fyrir sig væri ekki nóg til að takast á við hnattrænt umfang hennar. Hamfarirnar væru margslungnar og baráttan gegn veirunni krefðist fjölþjóðlegs átaks. Guterres hvatti til samstöðu ríkja en fjölmörg ríki, þar á meðal Evrópusambandsríkin, hafa lokað landamærum. „Það er skiljanlegt að lagðar séu hömlur á ferðalög til þess að hindra útbreiðslu veikinnar. En á sama tíma er mjög þýðingarmikið að fólk finni fyrir þörf á samstöðu. Það er mikilvægt að berjast gegn falsfréttum og herferðum á samfélagsmiðlum sem miða að því að skapa ótta og sundrungu.“ Viðnám á heilbrigðissviði er einn af helstu vígvöllum í stríðinu gegn veirunni, að mati Guterres. Hann kvaðst hafa áhyggjur af því að sum ríki hefðu ekki einu sinni bolmagn til að fást við frekar mildar birtingarmyndir og hefðu ekkert svar til að bregðast við miklum þörfum aldraðra. „Jafnvel í auðugum ríkjum höfum við horft upp á heilbrigðiskerfi bogna undan álaginu. Þörf er á að verja meira fé til heilsugæslu til að koma til móts við brýnar þarfir og svara aukinni eftirspurn,“ sagði hann og hvatti til auknum greiningum, bættri aðstöðu, meiri stuðning við heilbrigðisstarfsmenn og að nauðsynlegar birgðir verði útvegaðar. Efnahagsleg viðspyrna Þróuðum ríkjum ber að rétta ríkjum hjálparhönd sem eru verr í stakk búin að glíma við neyðarástandið, sagði aðalframkvæmdastjórinn. „Ríkar þjóðir mega ekki halda að það dugi að finna úrræði fyrir sína eigin ríkisborgara. Það er hagur allra að leggja lóð á vogarskálarnar í baráttunni á heimsvísu,“ sagði hann og varaði við því að veiran myndi leggja að velli milljónir manna ef henni yrði leyft að breiðast út eins og eldur í sinu. Þá hvatti aðalframkvæmdastjórinn ríki til að byggja á Heimsmarkmiðunum um sjálfbæra þróun og Parísarsamningnum um loftslagbreytingar í viðbrögðum sínum við hamförunum. „Okkur ber að standa við loforð okkar í þágu fólksins og jarðarinnar. Við þurfum meira á samstöðu, von og pólitískum vilja að halda en nokkru sinni fyrr til þess að vinna sameiginlega sigur á þessari vá,“ sagði hann að lokum. Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Mest lesið Íslenskur morðingi í Bandaríkjunum: „Gerðu það pabbi, ekki gleyma mér“ Innlent Fundu mögulega eitt af 67 fórnarlömbum hálfri öld síðar Erlent Tók málin í eigin hendur og opnar dagforeldravef Innlent Pirraður yfir því hvað friður er langt utan seilingar Erlent Átökin ná nýjum hæðum Erlent Kínverskir verktakar fá ekki að bora skipagöng í Noregi Erlent Samningurinn nauðsynlegur og ekkert athugavert við hann Innlent Blasi illa við að það eigi að troða áformunum í gegnum kerfið Innlent Hópsmit á Mánagarði ein „alvarlegasta uppákoma af þessu tagi“ Innlent Þjófar réðust á starfsmann verslunar Innlent