Kórónaveiran veikir stöðu kvenna 24. mars 2020 12:00 „
Neyð ýtir alltaf undir kynjamismunun,“ segir Maria Holtsberg, sérfræðingur í mannréttindum og neyð hjá UN Women í Asíu og Kyrrahafseyjum. Hún segir jafnframt að kórónaveirufaraldurinn hafi ólík áhrif á konur og karla í Asíu og veiki stöðu kvenna á mörgum vígstöðvum. Fulltrúar UN Women í Asíu segja það staðreynd að í neyðaraðstæðum séu konur berskjaldaðri en nokkru sinni fyrir ofbeldi. Á meðan helsta verkefni lögreglu hafi verið að halda faraldrinum í skefjum hafa tilkynningar og fyrirspurnir þolenda vegna heimilisofbeldis til hjálparsamtaka í Peking þrefaldast eftir að sóttkví hófst. „Skerðing á þjónustu við konur, svo sem almennar heilsufarsskoðanir og þjónusta við konur sem verða fyrir ofbeldi, er okkur mikið áhyggjuefni“, segir Holtsberg. Samkvæmt UN Women í Asíu hefur faraldurinn hvað mest efnahagsleg áhrif á konur. Víða í Austur-Asíu bera konur þyngstu byrði ólaunaðra umönnunarstarfa og eftir að skólar lokuðu hefur það haft viðamikil áhrif á stöðu kvenna á atvinnumarkaði, sem komast síður til vinnu en makar þeirra. Konur frá Filipseyjum eru meirihluti þeirra sem vinna þjónustustörf en á meðan neytendur halda að sér höndum geta þær ekki unnið og þar af leiðandi ekki sent tekjur til fjölskyldna sinna. Þá verða konur á tímakaupi, eigendur smárra fyrirtækja og konur sem starfa í þeim verksmiðjum sem reiða sig á hráefni frá Kína einnig fyrir miklu tekjutapi. Um 400 þúsund konur frá Filipseyjum og Indónesíu starfa við heimilisstörf í Hong Kong. Staða þeirra gagnvart vinnuveitanda er mjög veik. Þær eru hvattar af yfirvöldum til að halda sig innandyra á frídögum sínum vegna smithættu og lenda því oft í að vinna ógreidda vinnu fyrir vinnuveitandann, eða er hótað uppsögn vinni þær ekki þá daga. Heilsu þeirra er einnig ógnað ef vinnuveitendur þeirra gefa þeim ekki handspritt og andlitsgrímur, en verð á þessum vörum hefur farið upp úr öllu valdi og ekki á færi þeirra að kaupa þær sjálfar. Síðast en ekki síst eru konur 70% þeirra sem starfa í framlínunni í Kína um þessar mundir bæði innan heilbrigðis- og félagsþjónustunnar. Neyð hefur ólík áhrif á líf kvenna og karlmanna Mikilvægt er að þær stofnanir og aðilar sem veita mannúðaraðstoð starfi eftir kynjamiðuðum ferlum og átti sig á að neyðarástandið hefur ólík áhrif á líf kvenna og karlmanna. „Það er mikilvægt að mismunandi þarfir kvenna og karla verði hafðar í huga í komandi bataferli,“ segir Mohammad Naciri, svæðisstjóri UN Women í Asíu og í Kyrrahafseyjum en konum er oftar en ekki haldið utan við ákvarðanatökur í neyð. Kórónaveiran ýtir undir kynjamismunun í Asíu, heimilisofbeldi eykst í sóttkvíum og tekjumöguleikar kvenna skerðast frekar en karla. Eitt af mikilvægustu verkefnum UN Women er að tryggja að raddir kvenna í neyð heyrist, taka mið af þörfum þeirra og kvenmiða neyðaraðstoð. Vefur UN Women á Íslandi Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Mest lesið Fundu lík karlmanns í Reynisfjalli Innlent Frambjóðandi Trump lýsti sér sem „svörtum nasista“ á klámsíðu Erlent Sýknaður af ákæru um manndráp af gáleysi á Akureyri Innlent Kona á níræðisaldri sá björninn í þriggja metra fjarlægð Innlent Ákærður fyrir að stinga lækni í kvöldgöngu Innlent Fjórir í bílnum en enginn við stýrið Innlent Áhyggjuefni að innri landamærin séu ekki betur tryggð Innlent „Kerfið er algjörlega að bregðast fólkinu“ Innlent Rafrettukóngur og eigandi Drekans sakaðir um 740 milljóna brot Innlent Nafn mannsins sem lést í vinnuslysi í Árborg Innlent