Leitað eftir félögum í árnefnd Elliðaánna Karl Lúðvíksson skrifar 11. janúar 2021 11:59 Nú leitar SVFR eftir nýjum félögum í árnefnd Elliðaánna. Mynd af www.svfr.is Stangaveiðifélag Reykjavíkur hefur að skipa árnefndum fyrir hvert veiðisvæði og nú er verið að leita innan raða félagsins eftir nýjum veiðimönnum í árnefnd Elliðaánna.
Stangaveiðifélag Reykjavíkur hefur að skipa árnefndum fyrir hvert veiðisvæði og nú er verið að leita innan raða félagsins eftir nýjum veiðimönnum í árnefnd Elliðaánna.Elliðaárnar hafa lengi verið hjarta félagsins og það er þess vegna mikil ábyrgð sem fylgir því að sitja í árnefnd fyrir árnar en að sama skapi mjög gefandi og skemmtilegt. Hér fyrir neðan er frétt frá félaginu: SVFR auglýsir eftir fólki í árnefnd Elliðaánna, sem skipuð verður á næstunni. Viðbúið er að margir félagsmenn muni bjóða fram sína starfskrafta, enda eru Elliðaárnar heimavöllur SVFR og einstök laxveiðiperla á heimsvísu. Áhugasamir geta sent inn umsókn á www.svfr.is/umsokn- nefndarstarf/ til og með 17. janúar nk. Stjórn SVFR hefur ákveðið að fjölga í nefndinni frá því sem verið hefur og skipa tólf árnefndarmenn í stað þeirra sex sem setið hafa í nefndinni. Eftir áralanga setu hafa þeir tilkynnt félaginu þá ákvörðun sína að segja sig frá nefndarstörfum og láta öðrum eftir að sinna ársvæðinu af alúð og natni. Með fjölgun árnefndarmanna gefst fleiri félagsmönnum kostur á þátttöku í skemmtilegu árnefndarstarfi, auk þess sem ábyrgðin fellur á fleiri herðar. Í þessu því samhengi hefur komið til álita að endurskoða almennar árnefndarreglur SVFR, svo nefndarmenn séu skipaðir í tiltekinn tíma en sitji ekki sjálfkrafa eins lengi og þá lystir. Stjórn SVFR telur að með nýjum og samræmdum reglum megi jafna tækifæri félagsmanna til að sinna ábyrgðarstörfum fyrir félagið, minnka kynjahallann og tryggja reglulega nýliðun í árnefndum félagsins. Mikilvægt er að slík endurnýjun gerist smám saman, svo reynsla og þekking glatist ekki úr árnefndarstarfinu. Félagið þakkar fráfarandi árnefndarmönnum Elliðaánna innilega fyrir sitt fórnfúsa starf á undanförnum árum. Með kveðju, SVFR
Stangveiði Mest lesið Fyrstu laxarnir á land úr Mýrarkvísl Veiði Smá þjófstart við Elliðavatn í morgun Veiði 60 milljón króna tilboð í Hítará Veiði Of mikið veitt í Soginu Veiði Það eru stórir fiskar í Kleifarvatni Veiði Öflug fluga í köld vötn að vori Veiði Veiði að glæðast í Meðalfellsvatni Veiði Haustbragur á veiðitölum úr laxveiðiánum Veiði Nú er tíminn fyrir smáflugurnar í laxveiðinni Veiði 30 fiska opnun í Húseyjakvísl Veiði