Snorri Sturluson fangar ameríska drauminn Ritstjórn Albumm skrifar 3. febrúar 2021 14:30 Snorri Sturluson opnar um helgina ljósmyndasýningu með forvitnilegum myndum sem fanga bandarískan hversdagsleika. Snorri Sturluson, ljósmyndari, auglýsingamaður, kvikmyndagerðarmaður og heimspekingur opnar ljósmyndasýninguna American Dream í Gallery Port á laugardaginn, 6. febrúar, klukkan 14. Myndirnar á sýningunni tók Snorri þegar hann bjó í New York á árunum 2001 til 2017. Sýningin er óður til borgarinnar og fólksins sem byggir hana, sem og rannsókn á félagslegum, pólitískum og sálrænum veruleika bandarísks samfélags eins og það birtist í New York. En fyrst og fremst er hún upplifun og sýn Snorra á daglegt líf hans sjálfs í borginni sem aldrei sefur. Á sýningunni eru 40 myndir sem verða til í takmörkuðu upplagi, eða þrjú prent af hverri mynd. Sýningin American Dream er upplifun og sýn Snorra á daglegt líf hans sjálfs í borginni sem aldrei sefur.Snorri Sturluson Snorri hefur gefið út eina ljósmyndabók, Laundromat 2013, og haldið einkasýningar í New York og Los Angeles. Hann hefur ekki sýnt ljósmyndaverk áður í Reykjavík en árið 1995 hélt hann sýningu ásamt Lárusi Jóhannessyni á lágmyndum úr steinsteypu og malbiki sem bar nafnið Ferðin til tunglsins. Hægt er að kynna sér viðburðinn nánar á Facebook. Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í albumm@albumm.is. Menning Ljósmyndun Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Eva Marie Saint er látin Lífið „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun
Myndirnar á sýningunni tók Snorri þegar hann bjó í New York á árunum 2001 til 2017. Sýningin er óður til borgarinnar og fólksins sem byggir hana, sem og rannsókn á félagslegum, pólitískum og sálrænum veruleika bandarísks samfélags eins og það birtist í New York. En fyrst og fremst er hún upplifun og sýn Snorra á daglegt líf hans sjálfs í borginni sem aldrei sefur. Á sýningunni eru 40 myndir sem verða til í takmörkuðu upplagi, eða þrjú prent af hverri mynd. Sýningin American Dream er upplifun og sýn Snorra á daglegt líf hans sjálfs í borginni sem aldrei sefur.Snorri Sturluson Snorri hefur gefið út eina ljósmyndabók, Laundromat 2013, og haldið einkasýningar í New York og Los Angeles. Hann hefur ekki sýnt ljósmyndaverk áður í Reykjavík en árið 1995 hélt hann sýningu ásamt Lárusi Jóhannessyni á lágmyndum úr steinsteypu og malbiki sem bar nafnið Ferðin til tunglsins. Hægt er að kynna sér viðburðinn nánar á Facebook. Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í albumm@albumm.is.
Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í albumm@albumm.is.
Menning Ljósmyndun Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Eva Marie Saint er látin Lífið „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun