Tesla innkallar 135 þúsund bifreiðar vegna galla Eiður Þór Árnason skrifar 3. febrúar 2021 14:30 Innköllunin nær til Tesla Model S og Model X bifreiða. Getty Images/Jim Dyson Rafbílaframleiðandinn Tesla hyggst innkalla 135 þúsund Model S og Model X bifreiðar sem seldar voru í Bandaríkjunum vegna galla sem getur leitt til þess að snertiskjáir um borð í þeim hætta að virka.
Innköllunin nær til hluta þeirra Model S bíla sem framleiddir voru á árunum 2012 til 2018 og vissra Model X jepplinga árgerð 2016 til 2018. Bandaríska umferðaöryggisstofnunin kallaði eftir því um miðjan janúar að Tesla mynda hefja innköllunina með vísan til að bilaður skjár gæti aukið líkur á árekstrum. Stjórnendur Tesla mótmæltu upphaflega kröfunni og sögðu að vandamálið varðaði ekki öryggi bifreiðanna. Innköllunin hefst þann 30. mars næstkomandi og felur í sér að Tesla þarf að láta eigendur umrædda bifreiða vita af gallanum og bjóðast til að skipta út örgjörva sem stýrir skjánum. Eigendur þurftu að greiða fyrir að skipta skjánum út Bandaríska umferðaröryggisstofnunin fór fram á innköllunina á grundvelli þess að bilaður skjár gerði ökumönnum ókleift að nýta bakkmyndavél bílsins eða nota miðstöðina til að afísa rúður og fjarlægja móðu. Fram kemur í frétt CNN að í samskiptum Tesla við umferðaröryggisstofnunina hafi fyrirtækið hafnað því að bilaður skjár myndi áhrif á öryggi bifreiðanna og tekið fram að ekki væri vitað um nein umferðaróhöpp sem rekja megi til vandamálsins. Umferðaröryggisstofnunin kvaðst vera ósammála fullyrðingum Tesla og tilkynnti að mótmælin hefðu engin áhrif á skyldu framleiðandans til verða við beiðni um innköllun. Fram að þessu hefur Tesla rukkað viðskiptavini sem hafa skipt út snertiskjáum um borð í umræddum bifreiðum en innköllunin kveður á um að framleiðandinn greiði kostnað vegna viðgerða. Tesla hyggst nú skipta út áðurnefndri örflögu í þeim bifreiðum sem innköllunin nær til, eigendum þeirra að kostnaðarlausu og bjóða þeim afslátt á nýrri snertiskjáum.
Bílar Tesla Innköllun Tengdar fréttir Eigendur læstir út úr Teslum vegna bilunar Bilun hefur komið upp í tölvukerfi bílaframleiðandans Tesla og hafa eigendur bíla fyrirtækisins verið læstir úr bílum sínum. 23. september 2020 19:02 Mest lesið Byrjað að daðra við rasíska samsæriskenningu Innlent Helgi Pétursson er látinn Innlent Vitinn á Gjögurtá fallinn í sjó fram Innlent Svona stór er nýja moskítóflugan í samanburði Innlent Kom ekki til greina hjá starfshópi en nú líkleg niðurstaða Innlent Klóraði sig til blóðs meðan hann svaf Innlent Fengu nóg og tóku málin í sínar eigin hendur Innlent „Þeir sem leika sér að eldinum munu brenna upp til agna“ Erlent Ætla að flytja starfsemi Vogs Innlent Skortir lækna í Breiðholti Innlent
Eigendur læstir út úr Teslum vegna bilunar Bilun hefur komið upp í tölvukerfi bílaframleiðandans Tesla og hafa eigendur bíla fyrirtækisins verið læstir úr bílum sínum. 23. september 2020 19:02