Framtíðin í ó(wis)su Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 10. febrúar 2021 15:11 Ekki liggur fyrir hvort Eric Wise verður áfram hjá Grindavík. vísir/hulda margrét Daníel Guðni Guðmundsson, þjálfari Grindavíkur, vildi lítið segja um framtíð Bandaríkjamannsins Erics Wise hjá liðinu í samtali við Vísi. Wise hefur ekki vakið stormandi lukku með frammistöðu sinni með Grindavík það sem af er tímabili. Hann er með 13,3 stig og 6,4 fráköst að meðaltali í leik í Domino's deildinni. Wise og framtíð hans var til umræðu í Domino's Körfuboltakvöldi í gær. Þeir Sævar Sævarsson og Teitur Örlygsson voru sammála um að framlag hans til Grindavíkurliðsins væri ekki nógu mikið og það þyrfti annan bandarískan leikmann. Aðspurður í samtali við Vísi hvort Wise væri á heimleið sagði Daníel, þjálfari Grindavíkur, að það ætti eftir að koma í ljós. „Það er ekkert búið að ræða við hann,“ sagði Daníel um Dag. En gerir hann ráð fyrir að Wise spili næsta leik Grindavíkur sem er gegn Tindastóli annað kvöld? „Já, eins og staðan er núna. Það er ekkert búið að gera í þeim efnum,“ sagði Daníel sem vildi ekki tjá sig um hvort Grindvíkingar hafi rætt um að skipta Wise út. Dagur Kár Jónsson hefur misst af síðustu leikjum Grindavíkur eftir að hann meiddist gegn Njarðvík 28. janúar. „Við ætlum að nota landsleikjahléið til að sjá hvernig staðan verður á honum,“ sagði Daníel. Grindavík hefur fengið ástralska bakvörðinn Marshall Nelson til sín. Ef allt gengur að óskum losnar Nelson úr sóttkví á morgun. „Hann fer í próf á morgun og við verðum að sjá hvað kemur út úr því,“ sagði Daníel en sem fyrr sagði mætir Grindavík Tindastóli annað kvöld. „Hann lenti nokkrum klukkutímum of seint, annars hefði hann örugglega getað byrjað að æfa í dag.“ Grindavík hefur tapað tveimur leikjum í röð og er í 6. sæti Domino's deildarinnar. Domino's-deildirnar í körfubolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Domino's-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur. Dominos-deild karla UMF Grindavík Mest lesið Óvæntar vendingar á elleftu stundu hjá Elísu í einu sterkasta hlaupi í heimi Sport Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Fótbolti Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Enski boltinn Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Elías og félagar flugu áfram Fótbolti Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Handbolti Víkingar gefa frá sér sætið í Olís-deildinni Handbolti Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Enski boltinn Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Handbolti Fleiri fréttir Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Sjá meira
Wise hefur ekki vakið stormandi lukku með frammistöðu sinni með Grindavík það sem af er tímabili. Hann er með 13,3 stig og 6,4 fráköst að meðaltali í leik í Domino's deildinni. Wise og framtíð hans var til umræðu í Domino's Körfuboltakvöldi í gær. Þeir Sævar Sævarsson og Teitur Örlygsson voru sammála um að framlag hans til Grindavíkurliðsins væri ekki nógu mikið og það þyrfti annan bandarískan leikmann. Aðspurður í samtali við Vísi hvort Wise væri á heimleið sagði Daníel, þjálfari Grindavíkur, að það ætti eftir að koma í ljós. „Það er ekkert búið að ræða við hann,“ sagði Daníel um Dag. En gerir hann ráð fyrir að Wise spili næsta leik Grindavíkur sem er gegn Tindastóli annað kvöld? „Já, eins og staðan er núna. Það er ekkert búið að gera í þeim efnum,“ sagði Daníel sem vildi ekki tjá sig um hvort Grindvíkingar hafi rætt um að skipta Wise út. Dagur Kár Jónsson hefur misst af síðustu leikjum Grindavíkur eftir að hann meiddist gegn Njarðvík 28. janúar. „Við ætlum að nota landsleikjahléið til að sjá hvernig staðan verður á honum,“ sagði Daníel. Grindavík hefur fengið ástralska bakvörðinn Marshall Nelson til sín. Ef allt gengur að óskum losnar Nelson úr sóttkví á morgun. „Hann fer í próf á morgun og við verðum að sjá hvað kemur út úr því,“ sagði Daníel en sem fyrr sagði mætir Grindavík Tindastóli annað kvöld. „Hann lenti nokkrum klukkutímum of seint, annars hefði hann örugglega getað byrjað að æfa í dag.“ Grindavík hefur tapað tveimur leikjum í röð og er í 6. sæti Domino's deildarinnar. Domino's-deildirnar í körfubolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Domino's-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Domino's-deildirnar í körfubolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Domino's-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Dominos-deild karla UMF Grindavík Mest lesið Óvæntar vendingar á elleftu stundu hjá Elísu í einu sterkasta hlaupi í heimi Sport Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Fótbolti Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Enski boltinn Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Elías og félagar flugu áfram Fótbolti Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Handbolti Víkingar gefa frá sér sætið í Olís-deildinni Handbolti Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Enski boltinn Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Handbolti Fleiri fréttir Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Sjá meira