Næsta kynslóð bílastæðakerfa í borginni Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 19. febrúar 2021 07:01 Reynir Ólafsson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Öryggismiðstöðinni, við bílastæðahúsið í Kolaporti. Nýjasta kynslóð bílastæðakerfa er á leið í öll sjö bílastæðahús Reykjavíkurborgar. Bílastæðakerfin eru þegar komin upp og hafa verið gerð virk í Kolaporti, Vitatorgi og Stjörnuporti og uppsetning á kerfunum stendur yfir í Traðarkoti og Vesturgötu.
Meðfylgjandi er fréttatilkynning frá Öryggismiðstöðinni. Öryggismiðstöðin setur upp kerfin en um er að ræða myndavélar, bómur, greiðsluvélar og fleira sem tengist tæknibúnaði við bílastæðakerfin. Bílastæðasjóður valdi lausnir frá Öryggismiðstöðinni í þetta stóra og umfangsmikla verkefni. „Við erum búin að setja upp nýjustu kynslóð bílastæðakerfa í þrjú af bílastæðahúsum borgarinnar og tæknisérfræðingar okkar vinna að uppsetningu í fleiri húsum. Í nýju kerfunum eru myndavélar sem lesa sjálfvirkt af bílnúmeraplötum þegar ekið er inn og út úr bílastæðahúsunum. Þannig getur ökumaður ekið inn í bílastæðahús sem hann velur í borginni, bóman opnast og hleypir honum inn. Myndavélar lesa bílnúmerið og ökumaður greiðir í EasyPark appinu fyrir bílastæðið og þann tíma sem hann er í stæðinu. Hann þarf raunar ekki að yfirgefa bílinn frekar en hann vill því hann getur afgreitt allt í gegnum appið í símanum. Eftir fyrstu heimsókn í bílastæðahús geta notendur valið að greiða framvegis sjálfvirkt í gegnum EasyPark appið," segir Reynir Ólafsson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Öryggismiðstöðinni. „Í greiðsluvélum er hægt er að greiða fyrir bílastæði með öllum helstu greiðslukortum, einnig er hægt að greiða með símum og öðrum snertilausum greiðslulausnum. Í greiðsluvél er slegið inn bílnúmer, greitt fyrir bílastæði og ekið út. Þetta er ákaflega einfalt, þægilegt og öruggt," segir Reynir. Þeir sem eru áskrifendur hjá Bílastæðasjóð í langtímastæðum eru fyrir fram skráðir í kerfið og þeir keyra inn og út eins og áskriftarleið þeirra segir til um. Hugbúnaðarlausnin í bílastæðakerfinu er frá Softra og myndavélarnar frá ARH en báðir aðilar eru samstarfsaðilar Öryggismiðstöðvarinnar.
Bílastæði Reykjavík Mest lesið Úlfar hættir sem lögreglustjóri Innlent Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Innlent Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Innlent Dr. Bjarni er látinn Innlent Geyma fjöldann allan af fullum bensínkútum í bíl í Hlíðunum Innlent Þakkantinum var haldið saman með kústskafti Innlent Lýsa martraðakenndri leigubílaferð upp í Bláfjöll Innlent Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Innlent Trump með verri ímynd á heimsvísu en Xi og Pútín Erlent Staðfesta ábyrgð Rússa á því að malasíska þotan var skotin niður Erlent