Árleg byssusýning næstu helgi Karl Lúðvíksson skrifar 3. mars 2021 12:35 Árleg byssusýning Veiðisafnsins á Stokkseyri sem í ár verður í samvinnu við verslunina Vesturröst og skotfélagið Markviss á Blönduósi verður haldin laugard. 6. og sunnud. 7. mars 2021 frá kl. 11–18 í Veiðisafninu, Stokkseyri.
Árleg byssusýning Veiðisafnsins á Stokkseyri sem í ár verður í samvinnu við verslunina Vesturröst og skotfélagið Markviss á Blönduósi verður haldin laugard. 6. og sunnud. 7. mars 2021 frá kl. 11–18 í Veiðisafninu, Stokkseyri. Fjölbreytt úrval skotvopna verður þar til sýnis svo sem haglabyssur, rifflar, skammbyssur, herrifflar ásamt ýmsu tengdu skotveiðum m.a úr einkasöfnum Ingólfur í Vesturröst og félagar sýna úrval skotvopna sem og búnað til skotveiða og skotíþrótta ásamt sjónaukum og aukabúnaði til sýnis og sölu. Kynntir verða rifflar frá Savage, Henry, CZ, Tikka, Sako, haglabyssur frá Bettinsoli, Franchi, Beretta og Benelli, einnig sjónaukar frá Noblex, Bushnell, Simmons og Swarowski ásamt hljóðdeyfum frá Sonic og Ghost. Skotfélagið Markviss á Blönduósi hélt 30 ára afmælissýning fyrir skemmstu og koma þeir félagar með sérvaldar byssur frá þeirri sýningu að þessu sinni, má þar nefna, riffla, herriffla, haglabyssur og skammbyssur og verður þar margt fróðlegt að sjá. Félagsmenn frá Skotvís verða á staðnumog kynna félagið- og félagsstarfið. Einnig verða til sýnis skotvopn og munir frá Sverri Scheving Thorsteinssyni, Sigurði Ásgeirssyni, Einari og Braga frá Þverá, Sveini Einarssyni frv.veiðistjóra, Sigmari B. Haukssyni og Drífu-haglabyssur frá Jóni Björnssyni heitnum frá Dalvík ásamt haglabyssum sem Jón Þorsteinsson frá Ólafsfirði smíðaði. Allt áhugafólk um skotvopn og veiðar er velkomið, aðgangseyrir er kr.1500.- fl. og 750 kr. börn 6-12 ára. Nánari upplýsingar má sjá: www.veidisafnid.is markviss.net vesturrost.is
Skotveiði Mest lesið Bleikjur í Elliðaánum Veiði Umhverfisslys við Ytri Rangá Veiði Fyrstu fiskarnir komnir úr austurbakka Hólsár Veiði Veiðimenn óhressir með hækkun í Veiðivötnum Veiði Sumarhátíð Veiðihornsins stendur yfir um helgina Veiði Ytri-Rangá yfir 3.000 laxa; tvær vaktir með 161 lax Veiði Stígandi í veiðinni í Jöklu Veiði Heiðarvötnin að gefa fína veiði og væna fiska Veiði Ókeypis kastnámskeið fyrir krakkana Veiði Góð rjúpnaveiði um allt land í gær Veiði