Fólk geti lent mjög óvænt í aðstæðum sem það kemst ekki úr ef það fer inn á svæðið Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 4. mars 2021 08:33 Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn, Kristín Jónsdóttir hópstjóri náttúruvárvöktunar á Veðurstofu Íslands og Freysteinn Sigmundsson, jarðeðlisfræðingur og forseti jarðvísindadeildar HÍ á upplýsingafundi í gær. Almannavarnir Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, beinir því til almennings að vera ekki á ferðinni á því svæði á Reykjanesskaga þar sem óróinn og skjálftavirknin er hvað mest.
Hann segir ekki vitað hvar eða hvenær eldgos komi upp ef það byrjar að gjósa og því gæti fólk lent mjög óvænt í einhverjum aðstæðum sem það kæmist ekki úr ef það er að þvælast á svæðinu. Veginum að Keili og öðrum slóðum á svæðinu var lokað í gær eftir að óróapúls mældist klukkan 14:20 við Litla Hrút við Keili. Virknin og óróinn er enn viðvarandi þótt það hafi aðeins dvínað í nótt. Snemma í morgun færðist óróinn í aukana á ný og urðu til að mynda tveir stórir skjálftar á sjötta tímanum, annar 3,9 að stærð og hinn 4,0 að stærð. „Þetta bara heldur áfram. Það voru fimm svona frekar stórir skjálftar í nótt þannig að atburðarásin heldur áfram. Við erum ennþá í svipaðri stöðu og í gærmorgun áður en þessi óróahrina kom,“ segir Víðir í samtali við Vísi. Snúnara að flytja millilandaflugið norður út af Covid-19 Aðspurður um framhaldið í dag segir hann að stöðuga samráðsfundi framundan. „Við erum byrjuð að tala saman, svo eru fundir hver á fætur öðrum til að tryggja samráðið og taka stöðuna. Vísindamenn, ráðamenn og aðgerðastjórnir, þeir sem eru að stýra aðgerðum á Suðurnesjum, höfuðborgarsvæðinu og Suðurlandi. Þannig að það eru ýmis plön í gangi. Við erum að heyra í Norðlendingum líka varðandi það ef það þyrfti að flytja flugið norður. Það eru bara allir að undirbúa sig fyrir hinar ýmsu uppákomur um allt land.“ Spurður nánar út í flugið segir hann undirbúninginn snúa að því ef svo ólíklega vildi til að það þyrfti að flytja millilandaflugið til Akureyrar og/eða Egilsstaða vegna eldgoss. Hlutirnir séu snúnari núna en venjulega vegna þeirra sóttvarnaráðstafana sem eru í gildi á landamærunum vegan Covid-19. „Að öllu jöfnu þá væri þetta ekkert mál ef ein eða tvær vélar lentu úti á landi eins og gengur og gerist yfir veturinn. En vegna Covid-ráðstafana og landamærareglna þá þurfum við að vera búin undir það að geta framfylgt þeim, bæði á Egilsstöðum og Akureyri, menn eru bara að undirbúa sig undir það ef svo ólíklega vildi til. Það eru mjög litlar líkur á því en menn vilja vera tilbúnir,“ segir Víðir. Hann segir að vísindaráð almannavarna muni funda þegar niðurstöður úr gervitunglamyndum sem teknar voru á svæðinu í gær liggja fyrir. Vonast er til að niðurstöðurnar komi fyrir hádegi í dag. Þá segist Víðir telja það mjög líklegt að boðað verði til blaðamannafundar í dag ef það verða einhver stærri tíðindi. Gefa út leiðbeiningar ef það byrjar að gjósa hvar hægt verður að komast að Víðir segir að eitthvað hafi verið um það í gær að fólk hafi verið að koma að veginum að Keili og viljað fara um svæðið eftir að búið var að loka því. Það hafi þó ekki komið upp nein vandamál. „Á meðan við erum með þessa stöðu á þessu svæði að biðja fólk um að vera ekki að fara þarna inn. Við vitum ekkert 100 prósent hvar þetta kemur upp eða hvenær þannig að fólk getur lent mjög óvænt í einhverjum aðstæðum sem það kæmist ekki úr ef það væri að þvælast þarna inni á svæðinu,“ segir hann. Það þurfi einfaldlega að bíða og sjá hvern þróunin verður. „Um leið og við sjáum hvernig þetta þróast og ef það byrjar að gjósa þá munum við gefa út leiðbeiningar um hvar verður þægilegt að komast að ef menn vilja það. En á meðan þetta er svona mikil óvissa í þessu þá biðjum við fólk bara um að halda sig fjarri,“ segir Víðir og bætir við að þótt verið sé að horfa á einhvern tiltekinn stað eða örnefni þá sýni sagan að það sé alls ekkert öruggt að gos komi upp akkúrat þar.
Eldgos og jarðhræringar Jarðhræringar á Reykjanesi Almannavarnir Mest lesið Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Fleiri fréttir Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Sjá meira